Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Stofnreglugerð

1189/2005

Reglugerð um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds vegna alþjónustu á árinu 2006.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Álögð þinggjöld á tekjur ársins 2005 sem ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu og jöfnunargjald vegna alþjónustu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2006. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármálaráðherra. Eindagi er einum mánuði síðar.

Við skiptingu greiðslu skal við það miðað að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 2.000 kr. á hverjum gjalddaga.

Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi ekki verið greitt á eindaga.

2. gr.

Þar til álagning ársins 2006 liggur fyrir skal hver gjaldandi greiða fyrirfram upp í álagningu ársins. Greiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2005 að frátöldum eignarskatti og 8,5% af jöfnunargjaldi vegna alþjónustu sem greiða bar á árinu 2005.

Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða eru tekjuskattur og iðnaðarmálagjald. Að því er einstaklinga varðar er átt við önnur þinggjöld en tekjuskatt, þ.e. iðnaðarmálagjald.

3. gr.

Heimilt er gjaldanda að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda eða jöfnunargjalds vegna alþjónustu sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu 2006 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda skattstjóra til úrskurðar. Heimilt er að kæra úrskurð skattstjóra til ríkisskattstjóra en úrskurður ríkisskattstjóra er endanlegur.

4. gr.

Skattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn gjaldanda, sbr. 3. gr., nema þeir skattstofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2005 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2004. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati skattstjóra.

Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

5. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn skal skattstjóri tilkynna gjaldanda eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila.

6. gr.

Um greiðslur þinggjalda og jöfnunargjalds vegna alþjónustu á árinu 2006 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt með síðari breytingum, og 15. gr. laga nr. 107/1999, um fjarskipti, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 20. desember 2005.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ragnheiður Snorradóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.