|
|
111/2008
REGLUGERÐ
um ársskýrslu ríkislögmanns.
1. gr. Ríkislögmaður skal árlega senda ráðherra skýrslu þar sem gefið er yfirlit yfir meginþætti í starfsemi embættisins. Skal skýrslan ennfremur birt opinberlega.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. gr. laga um ríkislögmann nr. 51/1985, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 22. janúar 2008.
Geir H. Haarde. Bolli Þór Bollason.

|