Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

1077/2006

Reglugerð um ávísanir tannlækna á lyf. - Brottfallin

I. KAFLI

Gildissvið.

1. gr.

Reglugerð þessi fjallar um sérákvæði sem eiga við um heimildir tannlækna til að ávísa lyfjum, vegna verksviðs tannlæknis sbr. 6. gr. laga um tannlækningar nr. 38/1985, en að öðru leyti fer samkvæmt reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja.

II. KAFLI

Lyf, sem tannlæknar mega ávísa sjúklingum.

2. gr.

Tannlæknum er heimilt að ávísa sjúklingum sínum eftirfarandi lyfjum, vegna verksviðs tannlæknis sbr. 6. gr. laga um tannlækningar nr. 38/1985, þegar frá eru talin þau lyf, sem eru S- eða Z-merkt í sérlyfjaskrá:

1.

Lyfjum til staðbundinnar verkunar á eða í tönnum eða aðliggjandi vef eða munn­slím­himnum.

2.

Lyfjum í eftirtöldum lyfjaflokkum, sbr. skrá í gildandi sérlyfjaskrá sem byggir á ATC-flokkakerfi (Anatomical-Therapeutical-Chemical classification):

ATC-flokkur 

Lyf

A 01

Munn- og tannlyf

A 03 B A 01

Atrópín

A 03 F

Lyf sem hraða magatæmingu

A 04 A

Lyf við uppköstum og lyf við ógleði

A 07 A A

Sýklalyf

B 01 A B

Heparín-hópurinn

B 02 A

Storkusundrunarhemlar

B 02 B

Vítamín K og önnur blæðingalyf

B 03

Blóðskortslyf

B 05 C

Skolvökvar

C 01 C A 24

Epinefrín

D 01 A

Sveppalyf til staðbundinnar notkunar

D 04 A B

Staðdeyfilyf til staðbundinnar notkunar

D 06

Sýklalyf við húðsjúkdómum

D 07

Barksterar, húðlyf

D 09 A A

Lyfjalín með sýkingalyfjum

D 11 A X 14

Takrólímus

D 11 A X 15

Pímekrólímus

H 02 A B

Sykurhrífandi barksterar

H 04 AA

Blóðsykurhækkandi lyf

J 01

Sýklalyf

J 02 A

Sveppalyf

J 05 A B

Núkleósíðar og núkleótíðar, að undanskildum bakritahemlum

J 07 A M

Stífkrampi

M 01 A

Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf

M 02

Lyf til staðbundinnar notkunar við lið- og vöðvaverkjum

M 03 B A

Karbamínsýruestrar

M 03 B C

Etrar, efnafræðilega skyldir andhistamínum

M 03 B X

Önnur lyf með miðlæg áhrif

N 01 B

Staðdeyfilyf, nema útvortis lyf

N 02 A A 59

Kódein í blöndum

N 02 A X 02

Tramadól

N 02 B

Önnur verkjalyf og hitalækkandi lyf

N 05 B

Róandi og kvíðastillandi lyf, í afmældum skömmtum og minnstu skráðri pakkningastærð í senn, nema eftirritunarskyld lyf

N 05 C

Svefnlyf og róandi lyf, í afmældum skömmtum og minnstu skráðri pakkningastærð í senn, nema eftirritunarskyld lyf

N 07 B A

Lyf gegn nikótínfíkn

P 01 A B

Nítróímídazólafleiður

R 01 A

Lyf við nefstíflu og önnur neflyf til staðverkunar

R 01 B

Neflyf, ætluð til inntöku

R 02 A

Hálslyf

R 03 A C

Sérhæfð beta2-adrenvirk lyf

R 05

Hósta- og kveflyf

R 06

Ofnæmislyf til almennrar verkunar

S 01 A

Sýkingalyf

S 01 B

Bólgueyðandi lyf

S 01 C

Bólgueyðandi lyf og sýkingalyf í blöndum

S 02 C

Barksterar og sýkingalyf í blöndum

S 02 D

Önnur eyrnalyf

S 03 C

Barksterar og sýkingalyf í blöndum

V 03 A B

Lyf gegn eitrunum



III. KAFLI

Lyf, sem tannlæknar mega ávísa til nota í starfi.

3. gr.

Tannlæknum er heimilt að ávísa eftirtöldum eftirritunarskyldum lyfjum til notkunar við störf sín og skulu þeir þá rita á lyfseðilinn "Til nota í starfi":

ATC-flokkur

Lyf

Hámarksmagn á lyfseðli

N 02 A A 01

Morfín

20 lykjur af stungulyfi

N 02 A G 02

Cetóbemídón og krampalosandi lyf í blöndum

20 lykjur af stungulyfi

N 02 AB 02

Petidín

20 lykjur af stungulyfi

IV. KAFLI

Undanþágur.

4. gr.

Ráðuneytið getur veitt tannlækni með sérfræðileyfi undanþágu til að ávísa lyfjum, öðrum en þeim sem tilgreind eru í þessari reglugerð, vegna verksviðs tannlæknis sbr. 6. gr. laga um tannlækningar nr. 38/1985. Leita skal umsagnar landlæknis og Lyfjastofnunar um slíkar umsóknir.

V. KAFLI

Eftirlit, viðurlög og gildistaka.

5. gr.

Eftirlit.

Lyfjastofnun hefur eftirlit með að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt. Skylt er að láta Lyfjastofnun í té þau gögn eða upplýsingar sem stofnunin telur nauðsynleg vegna eftirlitsins.

6. gr.

Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum skv. 48. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum.

Um mál, sem rísa kunna út af brotum á reglugerð þessari, fer að hætti opinberra mála.

7. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. og 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2007. Samtímis fellur úr gildi reglugerð nr. 105/2001 um heimildir tannlækna til að ávísa lyfjum.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 14. desember 2006.

Siv Friðleifsdóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica