Iðnaðarráðuneyti

632/1982

Reglugerð um hitaveitu Rangæinga - Brottfallin

1.gr.

Stofnun og stjórnun.

Holtahreppur, Hvolhreppur og Rangárvallahreppur eiga og reka saman fyrirtæki, sem nefnist

Hitaveita Rangæinga, hér eftir nefnd hitaveitan.

Hitaveitan er stofnuð með samningi milli aðila frá 13. október 1981, þar sem kveðið er á um stjórn hennar og skipulag.

Hitaveitan er sjálfstæður réttaraðili og hefur sjálfstæðan fjárhag og reikningshald. Lögheimili hitaveitunnar og varnarþing er í Rangárvallasýslu.

Stjórn hitaveitunnar ræður umsjónarmann sem annast daglegan rekstur hitaveitunnar.

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um allt veitusvæði hitaveitunnar. Veitusvæði hitaveitunnar er Holtahreppur, Hvolhreppur og Rangárvallahreppur eins og veitukerfi hitaveitunnar nær til.

3. gr.

Einkaleyfi hitaveitunnar.

Hitaveitan hefur einkaleyfi til reksturs hitaveitu og dreifingar og sölu á heitu vatni á veitusvæði sínu sbr. 2. gr.

4. gr.

Verkefni.

Verkefni hitaveitunnar er að sjá um gerð og rekstur hitaveitu á veitusvæðinu. Í þessu skyni skal hitaveitan leita eftir samningum um borunar og virkjunarrétt, láta bora eftir heitu vatni og virkja þegar hagkvæmt þykir, leggja veitukerfi hitaveitu og annast sölu á heitu vatni eða varma til notenda.

5. gr.

Hitaveitugjöld.

Til þess að standa straum af kostnaði við hitaveituna innheimtir hún hitaveitugjöld svo sem orkugjald og heimæðagjald samkvæmt nánari ákvæðum í gjaldskrá. Stefnt skal að því að tekjur skv. gjaldskrá standi undir reksturskostnaði og fjármagnskostnaði hitaveitunnar.

Gjalddagi hitaveitugjalda er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð.

Það eru vanskil ef gjöldin eru ekki greidd innan 21 dags frá gjalddaga.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld, en henni ber að tilkynna fyrirætlun um lokun með 5 daga fyrirvara.

Kostnað af opnun á ný greiðir sá sem vanskilum veldur, samkvæmt gjaldskrá. Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá má taka lögtaki á kostnaði gjaldanda.

6. gr.

Lagnir veitukerfis.

Hitaveitan á og lætur leggja allar lagnir veitukerfisins: aðveituæðar, stofnæðar, dreifiæðar og heimæðar ásamt þeim innanhússlögnum sem liggja að hemla- og mælagrindum, svo og grindurnar sjálfar með tilheyrandi búnaði. Hitaveitunni er ekki skylt að leggja heimæðar meðan jörð er frosin.

Hitaveitunni er heimilt að setja nánari ákvæði um lögn heimæða í byggingarskilmála, þar sem um nýja byggð er að ræða.

7 . gr.

Kvöð um tengingu við hitaveitu.

Þeim sem húseign á við götu eða veg innan veitusvæðis hitaveitunnar þar sem vatnsæð hitaveitu liggur, er skylt að láta tengja hitunarkerfi og lagnir fyrir heitt kranavatn við hitaveituna.

Nú eru sérstakir erfiðleikar á tengingu húss, eða tenging þykir af einhverjum ástæðum ekki ráðleg, þá getur hitaveitan ákveðið að húsið skuli ekki tengt við hitaveitukerfið.

8. gr.

Eignarréttur hitaveitu og viðhaldsskylda.

Hitaveitan hefur eignarrétt og viðhaldsskyldu á aðveituæðum, stofnæðum, dreifiæðum og götuæðum veitunnar svo og heimæðum og lögnum innanhúss, að og með mæla- eða hemlagrindum ásamt tilheyrandi búnaði, er tengja vatnskerfi hússins við veituna, og telst dreifikerfið ná þangað. Tengingu vatnshitunarkerfis húss við mælagrind svo og nauðsynlegar breytingar á innanhússlögnum og hitunarkerfi húss vegna tengingar við hitaveituna skal húseigandi annast og kosta.

9. gr.

Ábyrgð og skyldur hitaveitunnar.

Hitaveitunni er skylt að haga starfsemi sinni þannig að sem best verði tryggður eðlilegur og truflunarlaus rekstur eftir því sem aðstæður leyfa.

Hitaveitan ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni, er leiða kann af rekstrartruflunum, er verða á veitunni vegna frosta, rafmagnstruflana, náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra atvika. Sama gildir ef rennsli í vatnsæð er stöðvað um stundarsakir vegna viðgerða og annarra nauðsynlegra framkvæmda veitunnar.

Hitaveitan er ekki skuldbundin gagnvart húseiganda til þess að tryggja að þrýstingur í vatnsæðum sé ávallt nægilegur. Stöðvun á rekstri veitunnar eða hluta hennar vegna viðhalds eða tenginga skal tilkynna fyrirfram ef unnt er og koma á eðlilegum rekstri aftur svo fljótt sem verða má.

10. gr.

Afnot varmaorku.

Varmi sá, sem hitaveitan lætur í té, er ætlaður til upphitunar húsa og almennra heimilisnota.

Óheimilt er með öllu að tengja annað en neysluvatnslögn við greiningu þá á mæla- eða hemlagrind sem til þess er ætluð.

Nú kemur fram ósk um að nota heita vatnið til annarra þarfa en greinir í 1. mgr. og þarf þá til þess heimild hitaveitunnar, sem hún getur bundið nánari skilyrðum og fyrirmælum hverju sinni.

11. gr.

Afrennslisvatn frá húskerfum.

Hitaveitunni er heimilt að nota aftur vatn, sem runnið hefur gegnum hitunarkerfi húss. Húsráðendum er heimilt að nota afrennslisvatnið til upphitunar á gróðurhúsum, bílastæðum, gangstígum o. s. frv. en skulu skila afrennslisvatninu aftur ef hitaveitan þarf á því að halda. Óski hitaveitan ekki eftir afrennslisvatninu skal húsráðandi annast og kosta að leiða afrennslisvatn í frárennsli hússins. Óheimilt er að leiða það þangað heitara en 40°C.

Ef húseigendur nota hitaveituvatn til hitunar bílastæða, gangstíga o. s. frv. og hitunarkerfin eru beint tengd veitunni þá getur hitaveitan krafist þess, að þessi kerfi séu þrýstiprófuð við þann hita sem gert er ráð fyrir að notaður verði.

12. gr.

Tenging við hitaveituna.

Áður en hitunarkerfi húss eða lagnir fyrir heitt kranavatn eru tengdar hitaveitukerfinu skal liggja fyrir uppdráttur samþykktur af hitaveitunni og gildir það jafnt um nýlagnir og viðbætur við eða breytingar á eldri lögnum.

Ef uppdrættir eru ekki til af gömlum hitunarkerfum þá getur hitaveitan krafist þess að þeir séu þegar gerðir, eftir því sem nauðsynlegt er og ber húseigandi allan kostnað af því.

Húseigandi skal heimila að leggja heimæð eða sameiginlega heimæð um lóð og sjá fyrir inntaksstað fyrir hitaveitu við útvegg kjallara eða 1. hæðar, ef hús er kjallaralaust, ásamt

nauðsynlegu rými fyrir mælagrind og annað tilheyrandi tengingu við veituna. Þar skal vera niðurfall í gólfi og skal sá staður ætíð vera aðgengilegur starfsmönnum hitaveitu.

Ef inntak hitaveitu og mælagrind eru ekki í sama herbergi skal lögn þar á milli vera óhulin eða í stokk, sem auðvelt er að opna. Óheimilt er að tengja vatnsdælur við heimæðar nema að fengnu leyfi hitaveitunnar.

Á öllum húskerfum tengdum hitaveitu skulu vera einstreymislokar og öryggisbúnaður skv. fyrirmælum hitaveitunnar.

Á hitakerfum tengdum einföldu dreifikerfi hitaveitu skal nota sjálfvirka afrennslisloka og/eða annan búnað sem heldur hæfilegum þrýstingi á hitakerfum.

13. gr.

Uppdrættir.

Uppdráttur skal gerður í samræmi við lög og reglur um byggingamál. Samþykktur uppdráttur skal ávallt liggja fyrir áður en bygging húss er hafin.

Ef hitaveitan telur ástæðu til, getur hún krafist þess, að útreikningar verði lagðir fram.

14. gr.

Hitalagnir.

Þeir sem leggja hitalagnir, bera ábyrgð á að allar lagnir séu í samræmi við reglugerð þessa, samþykkta uppdrætti, svo og nánari fyrirmæli, er sett kunna að verða.

Hitaveitan getur áskilið að þeir einir megi annast suðuvinnu á pípum samkvæmt reglugerð þessari, er staðist hafa sérstakt hæfnispróf í logsuðu og/eða rafsuðu.

Engir aðrir en þeir, sem réttindi hafa, mega taka að sér lagnir eða breytingar á hitakerfum sem tengjast eiga dreifikerfi hitaveitunnar.

Nú brýtur pípulagningameistari í bága við fyrirmæli reglugerðar þessarar eða aðrar reglur, sem honum ber að hlíta í starfi sínu eða brot er framið af starfsmönnum, sem hann ber ábyrgð á, þá getur hitaveitan samþykkt, að hann fái ekki að annast tengingu, ef um miklar sakir er að ræða eða ítrekuð brot.

15. gr.

Eftirlit.

Hitaveitan skal hafa eftirlit með því að nýlagnir, breytingar á eldri lögnum og tenging

húskerfa við hitaveitu sé í samræmi við reglugerð þessa, samþykkta uppdrætti, reglugerð um

hitalagnir og aðrar reglur og lög er gilda um byggingamál.

Álíti eftirlitsmaður að verk sé eigi framkvæmt samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar, ákvæðum reglugerðar um hitalagnir, eða öðrum reglum er settar kunna að verða, getur hann stöðvað verkið þar til bætt hefur verið úr því sem áfátt kann að vera.

16. gr.

Mælar og hemlar.

Hitaveitan ákveður stærð og gerð mæla, sem nota skal, og lætur setja þá á inntakspípur húsa, sem tengd eru kerfi veitunnar og innsigla þá. Mælar þessir eru í eigu og umsjá hitaveitunnar.

Ef maður rýfur innsigli mælis eða breytir rennsli um hann, varðar það refsingu skv. almennum hegningarlögum.

Notandi mælis er sá, sem skráður er fyrir vatnsnotkun þess hitakerfis, sem mælirinn er fyrir. Uppsögn eða flutning skal tilkynna hitaveitunni með hálfs mánaðar fyrirvara.

Ef notandi óskar að mælir sé leiðréttur, skal hann senda skriflega beiðni til hitaveitunnar. Ef þá kemur í ljós við athugun að mesta skekkja sé innan við 5%, er heimilt að gera notanda að greiða kostnað við prófunina. Sé skekkjan meiri skal hitaveitan bera kostnað við prófunina og lækka reikning notanda, í samræmi við niðurstöðu hennar, ef notandi fékk minna vatn, en mælir sýndi, þó ekki fyrir lengra tímabil en 4 mánuði, nema sannað sé að skekkjan hafi verið í lengri tíma.

Öll þau sömu ákvæði og hér eru talin um mæla, skulu gilda jafnt um hemla, ef selt er samkvæmt hemilstaxta.

Starfsmenn hitaveitu skulu jafnan hafa frjálsan aðgang að pípulögnum bæði innanhúss og utan. Húsráðanda er skylt að láta þeim í té þær upplýsingar sem máli geta skipt um hitun hússins og heitt kranavatn.

17. gr.

Skyldur húseiganda og ábyrgð.

Húseiganda er skylt að hlíta þeim reglum og fyrirmælum sem hitaveitan setur, um gerð og búnað neysluvatnsins og hitunarkerfis hússins.

Húsráðandi ber ábyrgð á þeim búnaði og lögnum innanhúss, sem eru í eigu og umsjá hitaveitunnar. Húsráðanda ber að tilkynna tafarlaust til hitaveitunnar, ef vart verður bilunar á búnaði og tækjum, og skal hann hlíta fyrirmælum um viðgerð á bilunum og gera ráðstafanir til varnar misnotkun á hitaveituvatninu.

Nú verða tæki eða annar búnaður fyrir óvenjulegu hnjaski eða skemmdum, og er þá heimilt að skylda notanda til að greiða kostnað við viðgerð eða endurnýjun.

18. gr.

Viðurlög við brotum.

Brot á reglugerð þessari varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Nú vanrækir maður að láta vinna verk, sem hitaveitan hefur fyrirskipað samkvæmt reglugerð þessari, eða verk er ekki unnið á viðeigandi hátt, og er þá hitaveitunni heimilt að láta vinna það sem þörf krefur á kostnað eiganda. Kostnaðinn má innheimta hjá eiganda með lögtaki ef þörf krefur.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af stjórn Hitaveitu Rangæinga er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58 29. apríl 1967 til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli.

Iðnaðarráðuneytið, 25. nóvember 1982.

Hjörleifur Guttormsson.

Páll Flygenring.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica