|
|
040/2001
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 763/2000 um vátryggingu þeirra sem veita
heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
1. gr. 4. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Fjárhæðir samkvæmt þessari grein skulu miðast við vísitölu neysluverðs 202,1 og breytast 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á vísitölunni.
2. gr. Nýr málsliður bætist við 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar er orðast svo:
Um fjárhæðir þessar gilda ákvæði 4. mgr. 2. gr.
3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 10. gr., sbr. 21. gr., laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu, sbr. lög nr. 176/2000, öðlast gildi þegar í stað.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 12. janúar 2001.
Ingibjörg Pálmadóttir. Davíð Á. Gunnarsson.
Stofnreglugerð: 763/2000 - Reglugerð um vátryggingu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
|