Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. nóv. 2013

1187/2012

Reglugerð um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2013.

1. gr.

Þinggjöld sem leggja skal á tekjur ársins 2012 og ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2013. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra. Eindagi er 15 dögum eftir gjalddaga, sbr. þó 2. mgr. 4. gr.

Fyrirframgreiðslu búnaðargjalds vegna álagningar ársins 2014 er jafnað á fimm gjalddaga á árinu 2013, þ.e. frá 1. ágúst til 1. desember.

2. gr.

Þar til álagning ársins 2013 liggur fyrir skal hver gjaldandi greiða fyrirfram upp í álagningu ársins. Fyrirframgreiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2012 og 8,5% af jöfnunargjaldi vegna alþjónustu sem greiða bar á árinu 2012. Við skiptingu fyrirframgreiðsluskyldu og eftirstöðva álagningar skal við það miðað að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 2.000 kr. á hverjum gjalddaga.

Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða í fyrirframgreiðslu eru tekjuskattur, fjársýsluskattur, sérstakur fjársýsluskattur, jöfnunargjald alþjónustu og búnaðargjald.

Menn skulu fyrirframgreiða tekjuskatt, útsvar, auðlegðarskatt, jöfnunargjald alþjónustu og búnaðargjald eftir því sem kveðið er á um.

3. gr.

Árlegir gjalddagar eftirtalinna gjalda eru sem hér segir:

Gjalddagar einstaklinga vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. eru 1. ágúst, 1. september og 1. október. Gjalddagi vegna gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra og slysatrygging vegna heimilisstarfa skal vera einn, 1. ágúst.

Gjalddagi lögaðila vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. og sérstaks fjársýsluskatts er 1. nóvember.

Gjalddagi tryggingagjalds utan staðgreiðslu er 1. ágúst.

4. gr.

Hafi skattar, þ.e. fyrirframgreiðsla og álögð gjöld, ekki verið greiddir innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.

Vanskil gjaldanda að hluta á álögðum sköttum og gjöldum valda því að allir skattar gjaldandans falla í eindaga 15 dögum eftir gjalddaga vangoldinnar greiðslu, en þó ekki fyrr en 15. dag næsta mánaðar eftir að álagningu er lokið.

5. gr.

Heimilt er gjaldanda að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda, sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu ársins 2013 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda ríkisskattstjóra til ákvörðunar. Sama gildir eftir því sem við á um lækkun á fyrirframgreiðslu búnaðargjalds á árinu 2013 vegna álagningar 2014.

6. gr.

Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn gjaldanda, sbr. 5. gr., nema þeir skattstofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2012 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2011 og ef fyrirsjáanlegt er að búnaðargjald breytist um sem nemur a.m.k. 25%, þó að lágmarki 10.000 kr. á milli ára. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati ríkisskattstjóra.

Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

7. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu skal ríkisskattstjóri tilkynna gjaldanda eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila. Ákvörðun ríkisskattstjóra skal vera endanleg á stjórnsýslustigi

8. gr.

Um greiðslur þinggjalda á árinu 2013 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt með síðari breytingum.

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112., 114. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, 4. mgr. 6. gr. laga nr. 84/1997, um búnaðargjald, með síðari breytingum og 22. gr. laga nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.