Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

108/2010

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis, auk áorðinna breytinga. - Brottfallin

1. gr.

Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

 

a)

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 135/2007, frá 27. október 2007.

 

b)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 808/2003 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 135/2007, frá 27. október 2007.

 

c)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 668/2004 um breytingu á tilteknum viðaukum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar innflutning á aukaafurðum úr dýrum frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 135/2007, frá 27. október 2007.

 

d)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 92/2005 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar aðferðir við förgun eða notkun á aukaafurðum úr dýrum og um breytingu á VI. viðauka við hana að því er varðar umbreytingu lífgass og vinnslu bræddrar fitu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 135/2007, frá 27. október 2007.

 

e)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 93/2005 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar vinnslu aukaafurða úr fiski og viðskiptaskjöl fyrir flutninga á aukaafurðum úr dýrum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 135/2007, frá 27. október 2007.

 

f)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 416/2005 um breytingu á XI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar innflutning frá Japan á tilteknum aukaafurðum úr dýrum í tæknilegum tilgangi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2007, frá 27. október 2007.

 

g)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 181/2006 um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar lífrænan áburð og jarðvegsbæti, annan en húsdýraáburð, og um breytingu á þeirri reglugerð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2007, frá 27. október 2007.

 

h)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 208/2006 um breytingu á VI. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar vinnslukröfur fyrir lífgas- og myltingarstöðvar og kröfur varðandi húsdýraáburð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2007, frá 27. október 2007.

 

i)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2007/2006 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar innflutning og umflutning tiltekinna milliafurða, sem fást úr efni í 3. flokki og ætlaðar eru til tæknilegra nota í lækningatækjum, búnað til greininga í glasi og í prófefni á rannsóknarstofum, og um breytingu á þeirri reglugerð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 135/2007, frá 27. október 2007.

 

j)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 446/2004 um niðurfellingu nokkurra ákvarðana varðandi aukaafurðir úr dýrum.

 

k)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2067/2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 92/2005 að því er varðar annars konar aðferðir við förgun og notkun á aukaafurðum úr dýrum.

 

l)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1678/2006 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 92/2005 að því er varðar annars konar aðferðir við förgun og notkun á aukaafurðum úr dýrum.



2. gr.

Fylgiskjöl.

Reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins annars vegar og framkvæmdastjórnarinnar hins vegar skv. 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl I, II, III, IV, V, VI, VII, VIII, IX, X, XI og XII við reglugerð þessa.

3. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur ekki til aukaafurða dýra er teljast til úrgangs enda gilda þá lög nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.

Reglugerð þessi tekur ekki til sjávarspendýra.

4. gr.

Samþykki opinbers eftirlitsaðila.

Þegar reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins annars vegar og framkvæmdastjórnarinnar hins vegar skv. 1. gr. kveða á um tiltekið "samþykki" opinbers eftirlitsaðila fullnægja slíkir aðilar lagaskyldu sinni með útgáfu starfsleyfis skv. 13. gr. laga nr. 25/1993.

5. gr.

Eftirlit.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum ofangreindra reglugerða vegna aukaafurða úr dýrum sé framfylgt í samræmi við lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lög nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir.

6. gr.

Fiskmjöl og lýsi.

Verksmiðju, vinnslusvæði, búnað og áhöld sem notuð eru til framleiðslu fiskimjöls og lýsis, má ekki nota til framleiðslu úr öðru hráefni en sjávarafurðum.

7. gr.

Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir eða lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

8. gr.

Brottfall reglugerða.

Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur eftirfarandi reglugerð úr gildi:

Reglugerð nr. 77/2001 um framleiðslu og dreifingu á fiskimjöli og lýsi.

9. gr.

Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 17. gr. a laga nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerðin öðlast gildi 1. mars 2010. Þó taka efnisákvæði reglugerða skv. 1. gr. er varða aukaafurðir úr landdýrum ekki gildi fyrr en 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. janúar 2010.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica