Landbúnaðarráðuneyti

887/2004

Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. - Brottfallin

1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 261/2003 frá 12. febrúar 2003

öðlast gildi hér á landi og breytast ákvæði 12. liðar, Ensím, D-hluta 3. viðauka, aukefni, í samræmi við reglugerðina sem birtist hér í fylgiskjali 1.


2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 316/2003 frá 19. febrúar 2003

öðlast gildi hér á landi og breytast ákvæði 13. liðar Örverur, D-hluta 3. viðauka, aukefni, í samræmi við I. viðauka reglugerðarinnar og ákvæði 12. liðar, Ensím, D-hluta 3. viðauka, aukefni, í samræmi við II. viðauka reglugerðarinnar sem birtist hér í fylgiskjali 2.


3. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1876/2002 frá 21. október 2002

öðlast gildi hér á landi og breytast ákvæði 12. liðar, Ensím, D-hluta 3. viðauka, aukefni, í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar sem birtist hér í fylgiskjali 3.


5. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1756/2002 frá 23. september 2002

öðlast gildi hér á landi og fellur ákvæði um hníslalyfið E759 Nifursól í 4. lið, Hníslalyf, D-hluta 3. viðauka, aukefni, niður í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar sem birtist hér í fylgiskjali 4.


6. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2188/2002 frá 9. desember 2002

öðlast gildi hér á landi og breytast ákvæði 12. liðar, Ensím, D-hluta 3. viðauka, aukefni, í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar sem birtist hér í fylgiskjali 5.


7. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 162/2003 frá 30. janúar 2003

öðlast gildi hér á landi og breytast ákvæði 4. liðar, Hníslalyf, D-hluta 3. viðauka, aukefni, í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar sem birtist hér í fylgiskjali 6.


8. gr.

Í 12. viðauka, undir Ýmis efni, Smásjárrannsókn (við greiningu og mat á innihaldsefnum úr dýraríkinu), fellur niður tilvísun til tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 98/88 og í staðinn kemur tilvísun til tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 126/2003.


9. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og til innleiðingar á reglugerðum framkvæmdastjórnar (EB) nr. 261/2003, 316 /2003 samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2003, reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 162/2003 samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2003, reglugerðum framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1756/2002, 1876/2002 og 2188/2002 samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2003 og tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 126/2003 samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 96/2004 og tekur gildi þegar í stað.


Landbúnaðarráðuneytinu, 5. nóvember 2004.

F. h. r.
Guðmundur B. Helgason.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica