Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

396/2013

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 568/2008 um góða framleiðsluhætti að því er varðar efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2012, sem tók gildi 1. febrúar 2013, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 282/2008 frá 27. mars 2008 um efnivið og hluti úr endurunnu plasti, sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2023/2006. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, frá 29. mars 2012, bls. 459.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákvarðað samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

3. gr.

Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2013.

F. h. r.

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.