Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

366/2003

Reglugerð um sykur og sykurvörur.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um sykur og sykurvörur sem skilgreindar eru í viðauka reglugerðarinnar. Hún gildir þó ekki um vörur sem þar eru skilgreindar þegar um er að ræða flórsykur, kandíssykur eða vörur sem ætlaðar eru til útflutnings til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins.

2. gr. Vöruheiti og merkingar.

Auk þess að uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 588/1993 um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla með síðari breytingum skulu þær vörur sem skilgreindar eru í A-hluta viðauka 1 uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Þau vöruheiti sem skráð eru í A-hluta viðauka 1 gilda einungis um þær vörur sem þar eru skilgreindar og skal nota þau í viðskiptum til að auðkenna þær, sbr. þó e-lið. Vöruheiti í 2. tölulið A-hluta viðauka 1 má einnig nota til að auðkenna þær vörur sem tilgreindar eru í 3. tölulið sama viðauka.
    Auk framangreindra vöruheita er heimilt að:
    -nota hefðbundið heiti til viðbótar við vöruheiti í A-hluta viðauka 1, að því tilskildu að það villi ekki um fyrir neytendum;
    -nota vöruheitin í A-hluta viðauka 1 sem hluta af hefðbundnu heiti á annarri vörutegund að því tilskildu að það villi ekki um fyrir neytendum.
  2. Þegar um er að ræða vörur í neytendaumbúðum sem eru undir 20 g þarf ekki að tilgreina nettóþyngd á umbúðamerkingu.
  3. Þegar um er að ræða sykurslausn, lausn invertsykurs og invertsíróp skal tilgreina á umbúðamerkingu magn þurrefnis og invertsykurs.
  4. Tilgreina skal á umbúðamerkingu heitið "kristallað" þegar invertsíróp inniheldur kristalla í lausninni.
  5. Þegar vörurnar sem um getur í 7. og 8. tl. A-hluta viðauka 1 innihalda meira en 5% af frúktósa, miðað við þurrefni, skulu þær, að því er varðar vöruheiti þeirra og innihaldsefni, merktar annars vegar "frúktósa-glúkósasíróp" eða "glúkósa-frúktósasíróp" og hins vegar "þurrkað glúkósa-frúktósasíróp" eða "þurrkað frúktósa-glúkósasíróp", eftir því hvort glúkósa- eða frúktósaefnisþátturinn er stærri.

3. gr. Ábyrgð framleiðenda.

Innlendur framleiðandi eða innflytjandi er ábyrgur fyrir því að þær vörur sem fram koma í viðauka 1 séu í samræmi við ákvæði þessarar reglugerðar.

4. gr. Eftirlit.

Heilbrigðisnefndir hafa undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar, hver á sínum stað, eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt.

5. gr. Þvingunarúrræði.

Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

6. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Einnig var höfð hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, sem vísað er til í 7. tölul., XII. kafla, II. viðauka (tilskipun 2001/111/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi tilteknar sykurvörur til manneldis).

Reglugerðin tekur gildi við birtingu og frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 426/1995 um sykur og sykurvörur.

Ákvæði til bráðabirgða. I.

Vegna þeirra vörutegunda sem eru hér á markaði við gildistöku þessarar reglugerðar og sem ekki eru í samræmi við ákvæði hennar er veittur frestur til 12. júlí 2004 til að koma á nauðsynlegum breytingum. Markaðssetning vara, sem samræmast ekki þessari reglugerð en eru merktar fyrir 12. júlí 2004, er heimil uns birgðir eru þrotnar.

Umhverfisráðuneytinu, 9. maí 2003.

F. h. r.
Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.