Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1019/2006

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð, nr. 680/2004, um vinnu- og
hvíldartíma skipverja á farþegaskipum og flutningaskipum.

1. gr.
1. málsl. 2. mgr. 10. gr. orðist svo:
Á hverjum degi skal færa upplýsingar um daglegan vinnutíma eða daglegan hvíldartíma hvers og eins skipverja til að hægt sé að fylgjast með hvort gætt sé ákvæða 5. gr. reglugerðar þessarar.


2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. mgr. 7. gr. og 17. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001, með síðari breytingum, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Samgönguráðuneytinu, 27. nóvember 2006.

Sturla Böðvarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.

B_nr_1019_2006.doc

Stofnreglugerð:
680/2004 - Reglugerð um vinnu- og hvíldartíma skipverja á farþegaskipum og flutningaskipum.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt