Reglugerð um öryrkjavinnu.
1. gr.
Tryggingastofnun ríkisins er heimilt að
semja við atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði um að ráða til starfa
einstaklinga sem njóta örorkulífeyris, örorkustyrks, endurhæfingarlífeyris eða
slysaörorkubóta undir 50%. Miðað er við að einstaklingar hafi vinnugetu sem
ekki hafi nýst á almennum vinnumarkaði og að hann hafi ekki verulegar aðrar
tekjur en bætur almannatrygginga.
Sérstakur vinnusamningur skal gerður m.a. í samráði við
samtök öryrkja, stofnanir er sinna atvinnumiðlun eða endurhæfingu fatlaðra.
Skerðing bóta á starfstímabilinu fer eftir almennum ákvæðum
um skerðingu bótagreiðslna á hverjum tíma.
Mat á vinnugetu.
2. gr.
Áður en vinnusamningur er gerður skal
Tryggingastofnun ríkisins meta hvort heilsufar og vinnugeta hins fatlaða sé með
þeim hætti að hann geti gegnt starfinu um nokkra framtíð. Sama gildir ef
vinnusamningur er endurnýjaður og skal þá sú endurnýjun vera í samræmi við
matið.
Til þess að meta vinnugetu hins fatlaða í upphafi getur
Tryggingastofnun ríkisins leitað til þeirra sem hafa slíkt mat með höndum.
Endurmat á vinnugetu verði framkvæmt með jöfnu millibili og ekki sjaldnar en
árlega.
Vinnusamningur.
3. gr.
Vinnusamning skal gera til ákveðins tíma en
heimilt er að endurnýja samninginn. Vinnusamningur er trúnaðarmál aðila
málsins.
Vinnusamningur skal undirritaður af vinnuveitanda, fulltrúa
lífeyrisdeildar og hinum fatlaða.
Í vinnusamningi skal kveðið á um 3ja mánaða reynslutíma og
hlutfall endurgreiðslu launa og launatengdra gjalda hins fatlaða, sem skal
aldrei vera hærra en 75% og aldrei lægra en 25%.
Með launagreiðslur í sjúkdóms- og slysaforföllum hins
fatlaða skal fara skv. 5. gr. laga nr. 19/1979. Verði um frekari fjarvistir að
ræða, skal Tryggingastofnun ríkisins greiða viðkomandi bætur í samræmi við
örorkumat hans.
Heimilt er að gera vinnusamning til skemmri tíma en til
þriggja mánaða þegar um er að ræða fatlaða námsmenn.
4. gr.
Í vinnusamningi skal greindur vinnustaður
og þau störf sem hinum fatlaða er ætlað að leysa af hendi. Ennfremur skal í
vinnusamningi greindur kjarasamningur og launataxti, sem skal vera sá sami og
gildandi er á hverjum tíma milli launþegasamtaka og atvinnurekanda.
5. gr.
Vinnusamning skv. framansögðu má gera um
hluta úr heilsdags starfi. Ekki má gera vinnusamninga við fleiri en einn
atvinnurekanda í senn um hluta úr starfi fyrir sama einstakling.
6. gr.
Vinnusamningur er uppsegjanlegur af beggja
hálfu og skulu ákvæði uppsagnar vera í samræmi við almenna kjarasamninga í
þeirri starfsgrein. Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við mánaðamót. Uppsögn
skal jafnframt tilkynnt til lífeyrisdeildar Tryggingastofnunar ríkisins og
umsjónaraðila, sbr. 10. gr.
7. gr.
Komi upp ágreiningur á milli atvinnurekanda
og hins fatlaða um framkvæmd vinnusamnings, skal lífeyrisdeild Tryggingastofnunar
ríkisins kynna sér málavöxtu. Heimilt er þá að rifta samningnum, ef sýnt þykir,
að ósamkomulag sé á milli áðurnefndra aðila í þeim mæli, að ólíklegt sé, að
hinn fatlaði muni haldast við störf hjá fyrirtæki því, er hann réðst til.
Komi til riftunar samnings á atvinnurekandi ekki rétt á
greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins nema allt að því hlutfalli launa, sem
hann hefur greitt launþega.
Greiðsluhlutfall.
8. gr.
Tryggingastofnun ríkisins endurgreiðir
atvinnurekanda mánaðarlega hlutfall af launum hins fatlaða, sbr. 3. gr., gegn
framvísun kvittana þar að lútandi og afriti af launaseðlum og tilskyldum gögnum
sendum skattayfirvöldum. Jafnframt gefur Tryggingastofnun ríkisins
skattayfirvöldum upplýsingar um endurgreidd vinnulaun til atvinnurekanda eftir
hvert ár.
9. gr.
Auk fastra launa skal Tryggingastofnun
ríkisins greiða atvinnurekanda sama hlutfall og að ofan greinir af öllum
launatengdum gjöldum, sem atvinnurekandi greiðir vegna starfsmannsins. Verði um
vaktaálag að ræða, bónusgreiðslur eða yfirvinnu, kemur það ekki til greiðslu
frá Tryggingastofnun ríkisins nema í sérstökum undantekningatilvikum, sem metin
eru af fulltrúa lífeyrisdeildar Tryggingastofnunar ríkisins.
Umsjónaraðili.
10. gr.
Tryggingastofnun ríkisins tilnefnir
umsjónaraðila, t.d. úr röðum samráðsaðila, sbr. 1. gr., sveitarstjórna eða
stéttarfélaga, og gerir við hann samning. Umsjónaraðili getur jafnframt verið
sá sami og hafði milligöngu um gerð vinnusamningsins.
Hlutverk umsjónaraðila felst fyrst og fremst í því að
fylgjast með hvernig hinum fatlaða vegnar í starfinu, koma til aðstoðar ef
eitthvað bjátar á og vera tengiliður hans gagnvart öðrum samningsaðilum.
Tryggingastofnun ríkisins skal hafa samráð við
umsjónaraðila varðandi eftirlit og endurnýjun vinnusamnings. Heimilt er að
greiða þóknun fyrir starf umsjónaraðila.
Eftirlit og heimildir.
11. gr.
Lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins
skal hafa eftirlit með framkvæmd þessarar reglugerðar.
12. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2.
tl. ákvæða til bráðabirgða í lögum nr. 117/1993 um almannatryggingar öðlast
þegar gildi. Reglugerð þessa skal endurskoða einu ári eftir gildistöku hennar.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 16. febrúar 1995.
Sighvatur Björgvinsson.
Páll Sigurðsson.
Word útgáfa af reglugerð