Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

370/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 212/2012 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 200/2010 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2160/2003 að því er varðar það markmið Sambandsins að draga úr algengi sermigerða salmonellu í hópum fullorðinna undaneldisfugla af gerðinni Gallus gallus.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2012 frá 11. febrúar 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 517/2011 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003 að því er varðar það markmið Sambandsins að draga úr algengi tiltekinna sermigerða salmonellu í varphænum af tegundinni Gallus gallus og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2160/2003 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 200/2010.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 517/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, frá 29. mars 2012, bls. 208.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. apríl 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.