Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1010/2011

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2011 frá 1. júlí 2011 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 346/2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1251/2008 að því er varðar setningu lagareldisdýra á markað og innflutningskröfur sem gilda um sendingar á þeim til aðildarríkja eða hluta þeirra með innlendum ráðstöfunum samþykktum með ákvörðun 2010/221/ESB.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 346/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 7. október 2011, bls. 199.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008, um fiskeldi, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Til starfrækslu fiskeldisstöðva þarf rekstrarleyfi sem Fiskistofa veitir skv. III. kafla laga nr. 71/2008, um fiskeldi.

4. gr.

Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 55/1998, um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008, um fiskeldi, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra, laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 26. október 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica