Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

672/2008

Reglugerð um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

Breytingareglugerðir:

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB gerðir gildi hér á landi:

a. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 frá 23. febrúar 2005 um hámarksgildi fyrir varnarefnaleifar í eða á matvælum og fóðri úr plöntu- og dýraríkinu og um breytingu á tilskipun ráðsins 91/414/EBE. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2007 frá 28. apríl 2007.

b. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 178/2006 frá 1. febrúar 2006 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsi

Þetta vefsvæði byggir á Eplica