Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

448/2012

Reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. - Brottfallin

I. KAFLI

Tilgangur og gildissvið.

1. gr.

Tilgangur.

Tilgangur reglugerðar þessarar er að hindra að sjúkdómar berist til landsins með slátur­afurðum, eggjum, mjólkurafurðum og öðrum vörum sem reglugerðin tekur til. Jafnframt að koma í veg fyrir að fluttar verði til landsins afurðir dýra sem fengið hafa vaxtar­aukandi efni á eldisskeiðinu.

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerðin gildir um innflutning á hvers konar afurðum dýra og öðrum vörum, sem smitefni geta borist með er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum.

II. KAFLI

Varnir gegn dýrasjúkdómum.

3. gr.

Bann við innflutningi.

Eftirtaldar afurðir dýra og vörur sem geta borið með sér smitefni er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum er óheimilt að flytja til landsins samanber þó nánari útlistun í III. kafla:

  1. Hrátt kjöt, unnið sem óunnið, kælt sem frosið, svo og innmat og sláturúrgang, sem ekki hefur hlotið hitameðferð, þannig að kjarnhiti hafi náð 72°C í 15 sek­úndur eða aðra sambærilega meðferð að mati Matvælastofnunar.
  2. Dýrafóður sem inniheldur:
    1. Sjálfdauð dýr, þ. á m. dauðfædd og ófædd dýr (dýrafóstur).
    2. Dýr sem slátrað hefur verið vegna útrýmingar dýrasjúkdóma.
    3. Dýraúrgang þ. á m. afurðir úr dýrum sem við kjötskoðun eru dæmd óhæf vegna smitsjúkdóma.
    4. Þá hluta dýra sem slátrað er með eðlilegum hætti, en koma ekki til kjöt­skoðunar. Þetta gildir þó ekki um húðir, skinn, blóð og svipaðar afurðir.
    5. Kjöt, alifuglakjöt, fisk, villibráð og matvæli gerð úr dýraafurðum sem hafa orðið fyrir skemmdum.
    6. Dýr, ferskt kjöt og alifuglakjöt, fisk, villibráð, kjöt- og mjólkurafurðir sem almennt myndu ekki standast kröfur dýralæknayfirvalda til innflutnings.
    7. Dýraafurðir og dýraúrgang sem inniheldur leifar af aðskotaefnum sem eru hættuleg mönnum og dýrum.
    8. Fisk eða fiskúrgang sem dæmdur hefur verið óhæfur til manneldis vegna smitsjúkdóma.
    9. Afurðir úr áhættusömum dýravefjum, svo sem mænum, heilum, hausum og milti úr nautgripum og sauðfé.
    10. Afurðir sem mengast hafa eftir hitameðferð.
  3. Kjötmjöl, beinamjöl, blóðmjöl, fitu sem fellur til við vinnslu þessara efna og fóðurvörur unnar úr afurðum eða úrgangi spendýra og fugla.
  4. Hvers konar poka eða aðrar umbúðir sem notaðar hafa verið í landbúnaði eða hafa verið í snertingu við dýr, dýraafurðir og dýraúrgang.
  5. Ómeðhöndluð egg, eggjaskurn og eggjaafurðir, sem ekki hafa hlotið hitameðferð, þannig að varan hafi verið hituð í 65°C í fimm mínútur eða aðra sambærilega meðferð að mati Matvælastofnunar.
  6. Ógerilsneydda mjólk og mjólkurafurðir unnar úr ógerilsneyddri mjólk. Þó er heimilt að flytja til landsins allt að 1 kg af ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk til einkanota en ráðherra getur heimilað innflutning á meira magni í sama tilgangi.
  7. Hey, hálm, alidýraáburð og rotmassa og aðrar sambærilegar vörur blandað alidýra­áburði.
  8. Blóð, sermi og aðrar lífrænar vörur úr dýraríkinu, þ.m.t. sýkla, veirur, blóð-, blóð­vatns-, frumu-, vefja- og dýraeggjahvítusýni.
  9. Notuð reiðtygi og ósótthreinsuð reiðföt, óhreinan fatnað og tuskur svo og búnað sem notaður hefur verið til geymslu og flutninga á dýrum og dýraafurðum.
  10. Notaðar landbúnaðarvélar og áhöld, þar með taldar hestakerrur og önnur tæki sem notuð hafa verið í landbúnaði eða hafa verið í snertingu við dýr, dýraafurðir og dýraúrgang.
  11. Notaðan veiðibúnað til stangveiði, nema að undangenginni sótthreinsun.

III. KAFLI

Almenn ákvæði um innflutning.

4. gr.

Innflutningsleyfi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er heimilt, að fengnum meðmælum Matvæla­stofn­unar, að leyfa innflutning á vörum, sem taldar eru upp í 3. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, enda þyki sannað að ekki berist smitefni með þeim er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum og þau skilyrði sem sett hafa verið fyrir innflutningnum séu uppfyllt, sjá þó 7. gr.

Þegar sótt er um innflutning á hrárri eða ósótthreinsaðri vöru skv. 1. mgr. í fyrsta sinn skal innflytjandi láta sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í té nauðsynlegar upp­lýsingar um vöruna til athugunar og samþykkis áður en varan er send frá útflutn­ings­landi.

Innflytjandi hrárrar vöru skal alltaf sækja um leyfi til sjávarútvegs- og landbúnaðar­ráðherra og leggja fram, til umsagnar Matvælastofnunar, aðflutningsskýrslu, upplýs­ingar um uppruna- og framleiðsluland vörunnar, tegund vöru og framleiðanda auk tilskil­inna vottorða skv. 5. gr.

Allur innflutningur dýraafurða frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins skal fara um landamærastöðvar.

5. gr.

Hrá matvæli og mjólkurafurðir.

Innfluttum matvælum sem flokkast undir vöruliði: 0202, 0203, 0204, 0207, 0208, 0210, 1601 og 1602 sbr. viðauka I við tollalög nr. 88/2005, sem ráðherra hefur veitt heimild til að flyta til landsins sbr. 4. gr. og hafa ekki hlotið fullnægjandi hitameðferð skulu fylgja þau vottorð sem hér greinir:

  1. Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð, ef um er að ræða vörur frá fram­leið­endum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
  2. Opinbert vottorð sem staðfestir að dýrum, sem afurðirnar eru af, hafi ekki verið gefin vaxtarhvetjandi efni á eldistímanum, ef um er að ræða vörur frá fram­leiðendum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
  3. Vottorð sem staðfestir að vörurnar hafi verið geymdar við a.m.k. -18°C í einn mánuð fyrir tollafgreiðslu.
  4. Opinbert vottorð sem staðfestir að dýrunum, sem afurðirnar eru af, hafi verið slátrað í sláturhúsum og afurðirnar unnar í vinnslustöðvum, viðurkenndum á Evrópska efnahagssvæðinu, ef um er að ræða vörur frá framleiðendum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
  5. Opinbert vottorð sem staðfestir að afurðirnar séu lausar við salmonellusýkla.
  6. Slátur- og mjólkurafurðir og egg skulu uppfylla ákvæði gildandi reglugerðar um aðskotaefni í matvælum.
  7. Varan skal merkt í samræmi við gildandi reglur um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla.

Innfluttum matvælum sem flokkast undir vöruliði 0210 og 1601 og hlotið hafa eina af eftirfarandi meðferðum skulu fylgja opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð, ef um er að ræða vörur frá framleiðendum utan Evrópska efnahagssvæðisins, og staðfesting á að varan hafi hlotið viðeigandi meðferð sem hér greinir:

  1. Hitameðferð þar sem varan er í loftþéttum umbúðum með Fc gildi 3.00 eða meira eða meðferð þar sem kjarnhiti hefur náð 72°C í 15 sekúndur eða,
  2. náttúruleg gerjun og þroskun. Kjötið skal hafa hlotið meðferð sem felst í gerjun eða þroskun og hefur aw gildi sem er ekki hærra en 0,93 og pH gildi sem er ekki hærra en 6,0. Hráskinka skal hafa hlotið meðferð í minnst 190 daga og hrálendar í minnst 140 daga eða,
  3. kjöt þurrkað, verkað til geymslu. Kjötið skal hafa hlotið meðferð, sem er að mati Matvælastofnunar sambærileg við meðferðir sem fram koma í liðum a. og b. hér að ofan.

Innfluttir ostar sem flokkast undir tollskrárnúmer 0406.2000 og 0406.3000 skulu hafa hlotið viðeigandi meðferð þannig að ostamassinn hefur fengið hitameðhöndlun að lág­marki 48°C, varan hafi verið geymd í a.m.k. 6 mánuði við hitastig sem er ekki lægra en 10°C og með rakastig minna en 36%. Vörunni skulu fylgja opinbert uppruna- og heil­brigðis­vottorð, ef um er að ræða vörur frá framleiðendum utan Evrópska efnahags­svæðisins, og staðfesting á að varan hafi hlotið viðeigandi meðferð.

6. gr.

Gæludýrafóður.

Innflutningur gæludýrafóðurs sem framleitt er í samræmi við kröfur sem gilda um slíka framleiðslu á Evrópska efnahagssvæðinu er heimill ef fóðrið hefur verið meðhöndlað á eftirfarandi hátt og staðfesting þess efnis kemur fram á yfirlýsingu framleiðanda við skráningu vörunnar komi hún frá framleiðanda á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. 5. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, eða þegar um þriðju ríki er að ræða, á vottorði sem ESB viðurkennir og framvísað er við innflutning:

  1. Nagbein úr skinnum eða leðri hafi verið hituð nægilega til að drepa smitandi lífverur (þ.m.t. salmonellu),
  2. niðursoðið fóður hafi verið hitað að lágmarki 3.0 í Fc gildi í loftþéttum umbúðum,
  3. mjólkurvörur hafi verið gerilsneyddar,
  4. annað gæludýrafóður en nefnt er hér að ofan hafi verið hitað upp í kjarnahita a.m.k. 90°C.

Innflytjandi skal tilkynna Matvælastofnun um innflutninginn með minnst 48 klst. fyrirvara, sbr. 7. viðauka reglugerðar nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri, með síðari breytingum.

7. gr.

Innflutningur notaðra landbúnaðartækja.

Innflytjandi notaðra landbúnaðarvéla og áhalda, þar með talinna hestakerra og annarra tækja sem notuð hafa verið í landbúnaði sbr. j-lið 3. gr. skal alltaf sækja um inn­flutn­ingsleyfi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og skal hann hafa aflað slíks leyfis áður en viðkomandi vörur eru sendar frá útflutningslandi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra getur heimilað innflutning á tækjum sbr. 1. mgr. að fengnum meðmælum Matvælastofnunar enda þyki sannað að ekki berist smitefni með þeim sem valdið geta dýrasjúkdómum. Með umsókn um leyfi til innflutnings skal leggja fram til umsagnar Matvælastofnunar upplýsingar um uppruna- og framleiðsluland, tegund, framleiðanda, ásamt opinberu dýralæknisvottorðið um að fullnægjandi hreinsun og sótthreinsun hafi farið fram í útflutningslandi.

Séu skilyrði 1. og 2. mgr. ekki uppfyllt skal Matvælastofnun ekki veita meðmæli um innflutning á tækjum sem talin eru í 1. mgr. Þó er Matvælastofnun heimilt að mæla með innflutningi tækis með því skilyrði að sérstök sótthreinsun fari fram á kostnað inn­flytjanda og undir eftirliti Matvælastofnunar sé mögulegt að hreinsa og sótthreinsa tæki í innflutningshöfn.

8. gr.

Ábyrgð innflytjanda.

Innflytjandi vöru skal sjá til þess að öll nauðsynleg vottorð fylgi vörunni við innflutning og ber hann allan kostnað sem kann að leiða af öflun vottorða og þeim sóttvarnar­ráðstöfunum sem uppfylla þarf vegna innflutningsins, þ.m.t. nauðsynlegri sýna­töku og rannsóknum sem Matvælastofnun telur nauðsynlegar.

9. gr.

Alþjóðlegt áhættumat.

Meðmæli Matvælastofnunar varðandi sjúkdómavarnir skulu byggjast á áhættumati, sem m.a. tekur mið af listum OIE (Alþjóða heilbrigðismálastofnun dýra) varðandi A og B sjúkdóma og annarra alþjóðlegra staðla og leiðbeininga. Um framkvæmd þessarar greinar fer eftir ákvæðum samingsins um beitingu ráðstafana um hollustuhætti og heilbrigði dýra og plantna í 1. viðauka A við samninginn um stofnun Alþjóða­viðskipta­stofnunarinnar.

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

10. gr.

Ferðamenn með matvæli.

Innflutningur ferðamanna á matvælum sem reglugerð þessi tekur til er háður leyfi skv. 4. gr. reglugerðarinnar, sbr. 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Ferðamenn sem koma með matvæli þar sem staðfest er á umbúðum að varan hafi hlotið hitameðferð, sbr. a- og e-lið 3. gr., þurfa ekki að framvísa sérstökum vottorðum.

Ferðamenn með matvæli sem hlotið hafa meðferð sbr. 2. og 3. mgr. 5. gr. skulu framvísa vottorði um að matvælin hafi hlotið viðeigandi meðferð. Framvísa skal opinberu uppruna- og heilbrigðisvottorði ef um er að ræða vöru frá framleiðanda utan Evrópska efnahagssvæðisins.

11. gr.

Sláturafurðir sem berast með skipum og flugvélum.

Stjórnendur skipa og flugvéla sem koma til landsins með matvæli og matarleifar sem í eru dýraafurðir skulu sjá til þess að þær séu losaðar í sérstaka lekahelda sorpgáma og síðan eytt í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 108/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis, með síðari breytingum.

12. gr.

Umflutningur.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra getur heimilað umflutning á vörum þeim sem taldar eru upp í 3. gr. enda sé varan flutt úr landi á ný. Skilyrði fyrir slíku leyfi er að varan sé flutt í vandlega lokuðum umbúðum, þar sem innihald er tilgreint og sendingunni fylgi uppruna- og heilbrigðisvottorð.

13. gr.

Viðurlög.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

Afurðir dýra og vörur sem reglugerð þessi nær til og fluttar eru inn án heimildar skal brenna eða eyða á annan tryggilegan hátt.

14. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993, með síðari breytingum, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr nr. 66/1998, með síðari breytingum, lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum nr. 99/1993, með síðari breytingum, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru nr. 22/1994 og lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins nr. 509/2004, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. maí 2012.

Steingrímur J. Sigfússon.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica