Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

820/2007

REGLUGERÐ
um meðferð og nýtingu á slátur- og dýraleifum.

1. gr.
Tilgangur og gildissvið.
Tilgangurinn með reglugerðinni er sá að tryggja að smitefnum í slátur- og dýraleifum sé eytt eða þau gerð óskaðleg svo að afurðir, sem framleiddar eru úr slíkum leifum, séu lausar við smitefni.

Reglugerð þessi gildir um söfnun, flutning, geymslu, meðferð, vinnslu og nýtingu á slátur- og dýraleifum. Einnig gildir hún um brennslu og urðun á slíkum leifum.

Reglugerðin nær ekki til jarðgerðarstöðva sem vinna eingöngu afurðir úr plöntuúrgangi.


2. gr.
Orðskýringar.
Afurðir úr kjötmjölsverksmiðju eða jarðgerðarstöð: Nytja- eða söluvara, fullunnin eða að nokkru leyti unnin.

Áhættuflokkur 1: Sjá 3. gr.

Áhættuflokkur 2: Sjá 4. gr.

Áhættuflokkur 3: Sjá 5. gr.

Áhættuvefir: Hauskúpa með heila, augum og hálskirtlum og mæna úr sauð- og geitfé eldra en 12 mánaða, og heili, milta og aftasti hluti af mjógörn úr sauð- og geitfé á öllum aldri.

Brennsluofn: Ofn sem starfsleyfi er fyrir samkvæmt reglugerð fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Þar er slátur- og dýraleifum eytt með brennslu við háan hita.

Búfé: Alifuglar, geitur, hross, kanínur, loðdýr, nautgripir, sauðfé, svín og önnur dýr sem haldin verða til nytja. Rísi ágreiningur um hvað falla skuli undir hugtakið búfé sker landbúnaðarráðherra úr þeim ágreiningi.

Dýr: Búfé, eldisfiskar, villt spendýr og fuglar.

Dýraleifar: Heil hræ, skrokkar, skrokkhlutar, líffæri eða aðrar afurðir af dýrum sem ekki eru hæfar eða ætlaðar til manneldis.

Kjötmjölsverksmiðja: Verksmiðja þar sem nytja- eða söluvara er unnin úr slátur- og/eða dýraleifum.

Jarðgerðarstöð: Stöð þar sem líffræðilegt niðurbrot afurða úr dýraríkinu er látið fara fram við loftháð skilyrði.

Rekstrarleyfi: Er ákvörðun Landbúnaðarstofnunar í formi skriflegs leyfis þar sem tilteknum rekstraraðila er heimilað að starfrækja tilgreindan atvinnurekstur að því tilskildu að hann uppfylli viðeigandi ákvæði laga, reglugerða og rekstrarleyfisins.

Sláturafurðir: Kjöt og slátur af öllum sláturdýrum.

Sláturdýr: Búfé, sem slátrað er í löggiltum sláturhúsum til manneldis.

Sláturleifar: Leifar sem falla til við slátrun dýra og ekki eru nýttar til manneldis.

Urðunarstaður: Staður þar sem tekið er við úrgangi til förgunar á eða í landi, þar á meðal urðunarstaður fyrir eigin úrgang og varanlegur staður þar sem úrgangur er geymdur til lengri tíma.

Úrgangur: Sjá lög nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.


3. gr.
1. Áhættuflokkur.
Eftirfarandi telst til 1. áhættuflokks:

a)Áhættuvefir og allar slátur- og dýraleifar úr sauðfé og geitfé þar sem áhættuvefir hafa ekki verið fjarlægðir.
b)Hræ af sjálfdauðu sauðfé, geitfé og nautgripum, þar með talin dauðfædd dýr og fóstur slíkra dýra.
c)Sauðfé, geitfé og nautgripir sem hafa drepist í flutningi.
d)Slátur- og dýraleifar með riðusmitefni, grun um riðu eða annan heilahrörnunarsjúkdóm, einnig dýr sem lógað hefur verið til útrýmingar á riðu, þar með er talið skinn, húðir, blóð og saur úr slíkum dýrum.
e)Úrgangur sem inniheldur dýraleifar frá flutningatækjum í alþjóðlegri umferð.
f)Blöndur sem innihalda efni úr 1. flokki og annaðhvort efni úr 2. eða 3. áhættuflokki eða báðum þessara áhættuflokka.


Leifum og úrgangi sem talin eru upp í 1. mgr. skal safna og flytja án tafar til eyðingar í brennsluofni sé hann til staðar. Þar sem ekki er völ á brennsluofni skal úrgangi safnað saman og hann fluttur án tafar á urðunarstað og hann urðaður þannig að jarðlag sé a.m.k. einn metri.


4. gr.
2. Áhættuflokkur.
Eftirfarandi telst til 2. áhættuflokks:
a)Hræ af búfé, öðru en sauðfé, geitfé og nautgripum, sem er sjálfdautt eða hefur verið lógað og ekki er ætlað til manneldis, þar með talin dauðfædd dýr og fóstur slíkra dýra.
b)Hræ og leifar frá öðrum dýrum sem Landbúnaðarstofnun telur að meðhöndla skuli sem 2. áhættuflokk.
c)Dýr sem felld eru vegna sóttvarna samkvæmt opinberum fyrirmælum, sbr. þó 3. gr.
d)Allir hlutar sláturdýra sem dæmast óhæfir til manneldis og eru með merki um alvarlega sjúkdóma sem geta borist í fólk eða dýr.
e)Sláturafurðir sem hafa spillst og geta verið hættulegar til manneldis.
f)Sláturafurðir, sem hafnað er við innflutningseftirlit.
g)Dýr, önnur en sauðfé, geitfé og nautgripir, sem hafa drepist í flutningi.
h)Sláturafurðir með aðskotaefni og lyfjaleifar umfram þau mörk sem sett hafa verið.
i)Eldisfiskur með einkenni smitsjúkdóma.
j)Innihald meltingarvegar og sláturleifar sem smitaðar eru af innihaldi meltingarvegar.
k)Aðrar slátur- og dýraleifar sem falla í 2. áhættuflokk að mati Landbúnaðarstofnunar.


5. gr.
3. Áhættuflokkur.
Eftirfarandi telst til 3. áhættuflokks:
a)Allir hlutar heilbrigðra sláturdýra, þar með talið blóð og fóstur, sem ekki eru ætlaðir til neyslu af viðskiptaástæðum.
b)Allir hlutar sláturdýra, sem dæmast óhæfir til manneldis, en eru ekki með merki um alvarlega sjúkdóma sem borist geta í fólk eða dýr.
c)Klaufir, horn, svínaburstir og fiður af heilbrigðum dýrum sem slátrað er í sláturhúsi.
d)Bein og aðrar dýraleifar frá kjötvinnslum, mötuneytum og aðrar dýraleifar sem falla til sem almennur rekstrarúrgangur, sem og eldhúsúrgangur.
e)Aðrar dýraleifar sem falla í 3. áhættuflokk að mati Landbúnaðarstofnunar.


6. gr.
Meðferð og vinnsla slátur- og dýraleifa.
Meðhöndlun og vinnsla slátur- og dýraleifa skal vera í samræmi við ákvæði reglugerða er varða úrgang og reglugerð um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Auk þess skulu þeir sem meðhöndla, geyma eða flytja hræ og slátur- og dýraleifar til brennslu eða urðunar eða ætla að nýta það til fóðurgerðar eða moltugerðar afla sér heimildar Landbúnaðarstofnunar áður en starfsemin hefst í samræmi við lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Við slátrun er sláturleyfishöfum skylt að fjarlægja áhættuvefi úr sauðfé og geitfé.

Sláturleifum skal sláturleyfishafi safna saman og dýraleifum skal eigandi safna saman og flytja hann eins fljótt og kostur er á vinnslustað. Þar sem ekki er völ á slíku skal úrgangurinn fluttur án tafar til brennslu í brennsluofni eða til urðunar á urðunarstað.

Slátur- og dýraleifar skal flytja í gámum eða flutningatækjum, sem samþykkt hafa verið af Landbúnaðarstofnun, og eru lagarheld og lokuð eða með yfirbreiðslu.

Flutningatæki, yfirbreiðslur og gáma skal þvo vandlega með heitu vatni og sótthreinsa að lokinni hverri ferð.

Jarðgerðarstöðvar sem framleiða hluta afurða sinna eingöngu úr plöntuúrgangi, skulu tryggja að slík vinnsla sé aðskilin frá vinnslu þar sem framleiddar eru afurðir úr slátur- og dýraleifum.


7. gr.
Rekstrarleyfi.
Sá sem hyggst starfrækja eða byggja kjötmjölsverksmiðju eða jarðgerðarstöð skal sækja um rekstrarleyfi til Landbúnaðarstofnunar áður en starfsemin hefst, svo og vegna allra meiriháttar breytinga á fyrirkomulagi, búnaði og rekstri eða þegar eigendaskipti verða. Leggja skal fram teikningar af byggingum ásamt lýsingu á búnaði, fyrirhuguðum afköstum og öðru sem stofnunin telur nauðsynlegt. Áður en sótt er um rekstrarleyfi til Landbúnaðarstofnunar skal liggja fyrir starfsleyfi heilbrigðisnefndar samkvæmt reglugerð um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun.


8. gr.
Nýting afurða úr kjötmjölsverksmiðjum og jarðgerðarstöðvum.
Afurðir sem unnar eru úr slátur- og dýraleifum úr 1. áhættuflokki skal urða eða brenna.

Kjötmjöl úr kjötmjölsverksmiðju þar sem unnið er eingöngu úr slátur- og dýraleifum úr 3. áhættuflokki má nota í fóður fyrir gæludýr og loðdýr en ekki fyrir dýr sem gefa af sér afurðir til manneldis. Umbúðir þeirra afurða skal greinilega merkja með eftirfarandi áletrun: „Þetta fóður inniheldur dýraafurðir – óheimilt er að gefa það dýrum sem gefa af sér afurðir til manneldis.“ Fóðurblöndunarstöðvar sem framleiða fóður fyrir jórturdýr mega ekki taka við eða vinna úr afurðum úr kjötmjölsverksmiðjum.

Tólg sem unnið er úr slátur- og dýraleifum úr 3. áhættuflokki má nota í fóður fyrir einmaga dýr. Umbúðir þeirra afurða skal merkja greinilegri áletrun um að bannað sé að nota þær fyrir jórturdýr.

Afurðir úr kjötmjölsverksmiðju, sem notaðar eru í fóður, verða að uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri, ásamt síðari breytingum, en ákvæði reglugerðar nr. 398/1995 um áburð og jarðvegsbætandi efni, ásamt síðari breytingum, ef nota á þær sem áburð.

Kjötmjöl og molta sem framleidd er úr slátur- og dýraleifum, sbr. 4. og 5. gr. má nota sem áburð eða á annan hátt á beitilönd eða lönd þar sem fóðurs er aflað, enda líði a.m.k. 21 dagur frá notkun þessara afurða á landinu, þar til beit er leyfð eða fóðurs er aflað.

Kjötmjöl og molta sem framleidd eru úr slátur- og dýraleifum, sbr. 4. og 5. gr., má ekki nota sem áburð eða á annan hátt á:
a)land eða í gróðurhúsum þar sem ræktuð eru matvæli eða hráefni fyrir matvælaiðnað;
b)vatnsverndarsvæðum.

Umbúðir áburðar úr kjötmjöli og moltu sem innihalda slátur- og dýraleifar skulu merktar með eftirfarandi áletrun: „Lífrænn áburður eða jarðvegsbætandi efni / Má ekki nota til að rækta matvæli eða á vatnsverndarsvæðum – A.m.k. 21 dagur skal líða frá notkun þar til heimilt er að leyfa beit búfjár eða afla fóðurs á landi sem kjötmjölið/moltan er borin á“.


9. gr.
Reglur um notkun og skráningu á beitilönd eða lönd sem notuð eru til fóðurgerðar.
Á landi þar sem búfé er á beit eða á landi þar sem fóðurs er aflað og notað hefur verið kjötmjöl eða molta er umráðamanni lands skylt að geyma í a.m.k. tvö ár skráningar um:
a)magn kjötmjöls eða moltu sem notað er á landinu;
b)upplýsingum hvar á landinu afurðirnar voru notaðar og hvenær;
c)hvenær beit var leyfð á landinu og/eða hvenær fóðurs var aflað á landinu.

Til að fylgjast með að ákvæðum þessum sé fylgt er Landbúnaðarstofnun heimilt að skoða skráningar skv. 1. mgr. hvenær sem þess er óskað.


10. gr.
Eftirlit.
Landbúnaðarstofnun annast eftirlit með kjötmjölsverksmiðjum og jarðgerðarstöðvum sem lúta reglum er birtast í viðauka með reglugerð þessari. Uppfylli kjötmjölsverksmiðja eða jarðgerðarstöð ekki lengur þær kröfur skal Landbúnaðarstofnun, eins fljótt og verða má, skýra forráðamönnum fyrirtækisins skriflega frá því og gera kröfur um úrbætur og setja hæfilegan frest. Landbúnaðarstofnun getur stöðvað starfsemina tímabundið ef um alvarlega ágalla er að ræða. Hægt er að kæra ákvörðun Landbúnaðarstofnunar til landbúnaðarráðherra. Rekstrarleyfið fellur niður hafi eigi verið bætt úr göllum að loknum fresti.

Heilbrigðisnefnd ber ábyrgð á mengunarvarnaeftirliti með kjötmjölsverksmiðjum og jarðgerðarstöðvum og framkvæmd þess í samræmi við ákvæði reglugerðar um mengunarvarnaeftirlit.


11. gr.
Viðurlög.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar og fyrirmælum settum samkvæmt henni varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef sakir eru miklar.

Með mál vegna brota skal farið að hætti opinberra mála.


12. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og að höfðu samráði við umhverfisstofnun hvað varðar meðferð úrgangs. Reglugerðin er sett með hliðsjón af reglugerðum nr. 999/2001/EB og nr. 1774/2002/EB og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 660/2000 um meðferð og nýtingu á sláturúrgangi og dýraúrgangi, ásamt síðari breytingum.


Landbúnaðarráðuneytinu, 13. september 2007.

Einar K. Guðfinnsson.
Arnór Snæbjörnsson.



VIÐAUKI I

I. KAFLI
Reglur um kjötmjölsverksmiðjur.

1.Byggingar og búnaður skulu uppfylla eftirfarandi kröfur:
a.Lóð skal vera þrifaleg og aðkeyrslubrautir með varanlegu slitlagi. Aldrei skal neitt skilið eftir utandyra, sem ætilegt er fyrir hunda, ketti eða önnur dýr. Lóðin skal girt gripheldri girðingu og svo um búið að auðvelt sé að fylgjast með allri umferð að og frá verksmiðjunni. Öllu óviðkomandi fólki skal banna aðgang að lóð og byggingum. Búfé, hundum og köttum skal haldið frá lóðinni og byggingar skulu varðar fyrir hvers kyns meindýrum og skordýrum.
b.Kjötmjölsverksmiðju skal skipta í óhreina og hreina deild. Deildirnar skulu vera tryggilega aðskildar. Í óhreinu deildinni skal vera yfirbyggð aðstaða til móttöku á slátur- og dýraleifum. Móttakan skal vera þannig gerð að þrif og sótthreinsun sé sem auðveldust og á gólfum má hvergi safnast fyrir eða standa uppi vökvi.
c.Í óhreinu deildinni skal vera vélbúnaður til að smækka hráefni og búnaður til að flytja hráefnið yfir í framleiðsludeildina.
d.Móttaka fyrir hráefni skal vera tryggilega aðskilin frá þeim hluta kjötmjölsverksmiðju, þar sem vinnsla á hitameðhöndluðum afurðum fer fram og þar sem fullunnar afurðir eru geymdar. Afurðir úr kjötmjölsverksmiðju skulu geymdar í sérstöku rými sem er aðskilið frá vinnslusvæði og frá móttökusvæði fyrir úrgang.
e.Aðstaða þarf að vera til að þrífa og sótthreinsa ökutæki og gáma sem eru notuð við flutninga á úrgangi úr dýrum.
2.Við hitun á hráefni skal vera:
a.Búnaður til að mæla hitastig í hráefni og þrýsting á mikilvægum eftirlitsstöðum.
b.Sjálfvirkur búnaður til skráningar á mælingum.
c.Öryggisbúnaður til að koma í veg fyrir ónóga hitun.
3.Tiltækur skal vera viðeigandi búnaður, sem nota skal til að sótthreinsa hjólbarða á flutningatækjum, sem flytja úrgang áður en þau fara frá kjötmjölsverksmiðju.
4.Frárennsli frá kjötmjölsverksmiðju skal vera þannig frágengið að það uppfylli kröfur í starfsleyfi og í reglugerð um fráveitur og skólp og frárennslisvatn skal meðhöndla þannig að smitefni berist ekki út í umhverfið.
5.Kjötmjölsverksmiðja skal hafa rannsóknastofu eða samning við rannsóknastofu, sem getur gert allar nauðsynlegar mælingar, samkvæmt V. kafla þessa viðauka.


    II. KAFLI
    Hreinlætis- og umgengnisreglur í kjötmjölsverksmiðjum.

    1.Starfsfólk skal bera sérstök hlífðarföt og skófatnað sem geymdur er í kjötmjölsverksmiðju. Starfsfólk má ekki fara á milli óhreinna og hreinna deilda nema skipta um hlífðarföt og skófatnað. Tæki og verkfæri sem notuð eru við framleiðslu og þrif mega ekki fara úr óhreinu deildinni yfir í hreinu deildina. Hengja skal upp skriflegar umgengnisreglur á áberandi stöðum.
    2.Hráefni skal vinna eins fljótt og unnt er eftir móttöku og geyma á söfnunarstað uns allt hefur verið tekið til vinnslu.
    3.Gáma, ílát og flutningatæki á að hreinsa og þvo strax eftir hverja losun á til þess ætluðum stað í kjötmjölsverksmiðju eða lóð hennar og sótthreinsa reglulega og skal tryggt að fullunnar afurðir mengist ekki.
    4.Frárennslisvatn frá óhreinu deildinni skal meðhöndla þannig að tryggt sé að smitefni berist ekki út í umhverfið, þar með talið þvottavatn.
    5.Við vinnslu í kjötmjölsverksmiðju skal uppfylla eftirfarandi atriði:
    a.Hita skal slátur- og dýraleifar í 133°C í 20 mínútur og skal þrýstingur vera þrjú bör. Hráefni skal smækka fyrir hitameðhöndlun þannig að bitastærð sé mest 50 mm.
    b.Sjálfritandi hitamælir skal vera fyrir hendi til að fylgjast með hitameðhöndlun hráefnisins.
    6.Skrifleg áætlun um þrif og hreinlæti í kjötmjölsverksmiðju skal ávallt vera tiltæk.
    7.Kjötmjölsverksmiðju, byggingum, búnaði og umhverfi skal að staðaldri haldið hreinu og öllum tækjum og búnaði skal haldið í lagi. Mælitæki skulu sannreynd með reglulegu millibili.
    8.Meðferð og geymsla fullunninna afurða úr kjötmjölsverksmiðju skal vera þannig að tryggt sé að þær mengist ekki.


      III. KAFLI
      Innra eftirlit fyrirtækja.

      1.Koma skal á og viðhalda innra eftirliti í kjötmjölsverksmiðju samkvæmt aðferðafræði GÁMES-eftirlitskerfisins eða öðru jafngildu eftirlitskerfi að mati Landbúnaðarstofnunar og skal í innra eftirlitinu a.m.k. tekið á eftirtöldum þáttum:
      a.Mati á aðfluttu hráefni sem skal m.a. taka til flokkunar á hráefni, geymsluhitastigs og ferskleika þess.
      b.Uppsetningu flæðirits fyrir vinnslurásir.
      c.Ákvörðun mikilvægra eftirlitsstaða.
      d.Tilgreiningu viðmiðunargilda, skilyrða eða staðla, sem þarf að uppfylla á viðkomandi eftirlitsstað.
      e.Eftirliti á mikilvægum eftirlitsstöðum.
      f.Ákvörðun úrbóta sem gripið skal til þegar niðurstöður eftirlits sýna frávik frá settum mörkum.
      g.Smækkun hráefnis, hitastigi, þrýstingi og vinnslutíma.
      h.Framkvæmd reglna um kjötmjölsverksmiðjuna.
      i.Kerfi til að ætíð sé hægt að rekja hvenær afurðir kjötmjölsverksmiðju voru hitameðhöndlaðar.
      j.Meindýravörnum samkvæmt skriflegri áætlun.
      k.Skrá skal halda og láta liggja frammi yfir aðflutt magn hráefnis og flokkun þess í 2. og 3. áhættuflokk. Einnig skrá yfir afurðir og flokkun þeirra og afrit af sölu afurða úr 2. áhættuflokki.
      2. Við öll meiriháttar frávik í mælingum skal:
      a.Tilkynna það tafarlaust til Landbúnaðarstofnunar.
      b.Kanna orsakir þess sem úrskeiðis hefur farið.
      3.Tryggja skal að afurðir og slátur- og dýraleifar sem hugsanlegt er að ekki hafi fengið tilskilda hitameðhöndlun, t.d. efni sem er fjarlægt við ræstingu eða hefur lekið út við hitun, fari ekki frá kjötmjölsverksmiðju fyrr en þær hafa verið endurunnar og rannsakaðar að því loknu. Sé það ekki unnt þarf sérstakt leyfi til notkunar afurðanna. Þær má þó aldrei nota til fóðrunar dýra.


        IV. KAFLI
        Eftirlit Landbúnaðarstofnunar.

        1.Landbúnaðarstofnun hefur reglulegt eftirlit með kjötmjölsverksmiðjum. Um innheimtu eftirlitsgjalds fer eftir gjaldskrá stofnunarinnar. Landbúnaðarstofnun hefur eftirlit með að ákvæði þessarar reglugerðar séu uppfyllt. Stofnunin skal taka sýni til rannsóknar reglulega og fyrirvaralaust. Auk þess skal stofnunin gera aðrar athuganir sem hún telur nauðsynlegar. Stofnunin skal hvenær sem er eiga greiðan aðgang að öllum hlutum kjötmjölsverksmiðju, skráningum og niðurstöðum úr innra eftirliti kjötmjölsverksmiðju og fylgjast sérstaklega með:
        a.Almennu hreinlætisástandi í kjötmjölsverksmiðju, tækjabúnaði og vinnubrögðum og búnaði starfsfólks.
        b.Skilvirkni innra eftirlits kjötmjölsverksmiðju.
        c.Örveruástandi afurðanna eftir að vinnslu er lokið.
        d.Geymslu, flutningi og merkingu afurðanna.


          V. KAFLI
          Gæðaeftirlit með afurðum úr kjötmjölsverksmiðjum.

          1.Strax eftir hitameðhöndlun skulu tekin sýni úr afurð úr kjötmjölsverksmiðju sem unnin hefur verið úr 2. áhættuflokki og skulu þau vera laus við hitaþolin dvalargró sjúkdómsframkallandi baktería (Clostridium perfringens á ekki að finnast í 1 g).
          2.Sýni tekin úr afurð kjötmjölsverksmiðju og í afurðageymslu hennar skulu uppfylla eftirfarandi lágmarksstaðla:
          Salmonella: Ekki til staðar í 25 g: n = 5, c = 0, m = 0, M = 0
          Enterobacteriaceae: n = 5, c = 2, m = 10, M = 3 x 10² í 1 g
          þar sem:
          n = fjöldi sýna,
          m = viðmiðunarmörk varðandi fjölda baktería. Niðurstaða er viðunandi ef fjöldi baktería er m eða lægri í öllum sýnum,
          M = efri mörk fyrir heildarfjölda baktería. Niðurstaða er ófullnægjandi ef fjöldi baktería í einu sýni eða fleirum er hærri eða jafnt og M,
          c = fjöldi sýna með heildarbakteríufjölda á milli m og M. Niðurstaðan telst viðunandi ef fjöldi baktería er m eða lægri í öðrum sýnum.



            II. VIÐAUKI

            I. KAFLI
            Reglur um jarðgerðarstöðvar.

            1.Byggingar og búnaður skulu uppfylla eftirfarandi kröfur:
            a.Lóð skal vera þrifaleg og aðkeyrslubrautir með varanlegu slitlagi. Aldrei skal neitt skilið eftir utandyra, sem ætilegt er fyrir hunda, ketti eða önnur dýr. Lóðin skal girt gripheldri girðingu og svo um búið að auðvelt sé að fylgjast með allri umferð að og frá verksmiðjunni. Öllu óviðkomandi fólki skal banna aðgang að lóðinni eða byggingum. Búfé, hundum og köttum skal haldið frá lóðinni og byggingar skulu varðar fyrir hvers kyns meindýrum og skordýrum.
            b.Jarðgerðarstöðvum skal skipta í óhreina og hreina deild. Deildirnar skulu vera tryggilega aðskildar. Í óhreinu deildinni skal vera yfirbyggð aðstaða til móttöku á afurðum og leifum úr dýrum. Móttakan skal vera þannig gerð að þrif og sótthreinsun sé sem auðveldust og á gólfum má hvergi safnast fyrir eða standa uppi vökvi.
            c.Í óhreinu deildinni skal vera vélbúnaður til að smækka hráefni og búnaður til að flytja hráefnið yfir í framleiðsludeildina.
            d.Móttaka fyrir hráefni skal vera tryggilega aðskilin frá þeim hluta jarðgerðarstöðvarinnar, þar sem vinnsla á hitameðhöndluðum afurðum fer fram og þar sem fullunnar afurðir eru geymdar. Afurðir úr jarðgerðarstöð skulu geymdar í sérstöku rými sem er aðskilið frá vinnslusvæði og frá móttökusvæði fyrir slátur- og dýraleifar.
            2.Jarðgerðarstöðvar skulu auk þess búnar:
            a.Lokaðri jarðgerðartromlu (composting reactor), sem hráefnið verður að fara gegnum, ásamt:
            i) búnaði til að vakta hitastig í ferlinu,
            ii) búnaði til að skrá stöðugt, þar sem þess er þörf, niðurstöður þessara mælinga og
            iii) fullnægjandi öryggiskerfi, sem kemur í veg fyrir að hitun verði ónóg.
            b.Landbúnaðarstofnun getur heimilað annan jafngildan búnað, ef tryggt er að:
            i) búnaðurinn hafi góðar varnir gegn meindýrum,
            ii) að búnaðinum sé stjórnað þannig að allt hráefnið sem um hann fer, fái nægilega langan vinnslutíma og áskilda hitameðhöndlun, sem og að samfelld vöktun sé á vinnsluferlinu og
            iii) að búnaðurinn sé í samræmi við aðrar kröfur í þessari reglugerð.
            c.Aðstöðu til að þrífa og sótthreinsa ökutæki og gáma sem eru notuð við flutninga á slátur- og dýraleifum.
            3.Frárennsli frá jarðgerðarstöð skal vera þannig frágengið að það uppfylli kröfur í starfsleyfi og í reglugerð um fráveitur og skólp og frárennslisvatn skal meðhöndla þannig að smitefni berist ekki út í umhverfið.
            4.Tiltækur skal vera viðeigandi búnaður sem nota skal til að sótthreinsa hjólbarða á flutningstækjum sem flytja slátur- og dýraleifar áður en þau fara frá jarðgerðarstöðinni.
            5.Jarðgerðarstöð skal hafa eigin rannsóknastofu eða samning við rannsóknastofu, sem getur gert allar nauðsynlegar mælingar, samkvæmt V. kafla þessa viðauka og II. viðauka reglugerðar um áburð og jarðvegsefni.
            6.Eingöngu er heimilt að vinna úr eftirfarandi afurðum eða slátur- og dýraleifum í jarðgerðarstöð:
            a.Slátur- og dýraleifum úr áhættuflokki 2, sbr. 4. gr., þegar notuð er eftirfarandi vinnsluaðferð:
            i)Ef stærð einstakra bita leifanna sem á að vinna er yfir 50 millimetrum, skal smækka bitana með viðeigandi búnaði, sem er stilltur þannig að stærð bita eftir smækkunina verði ekki yfir 50 millimetrum. Kanna skal skilvirkni búnaðarins daglega og ástand hans skal skráð. Ef bitar, sem eru stærri en 50 millimetrar finnast við skoðun, skal vinnsluferlið stöðvað og viðgerð fara fram áður en það er sett af stað á ný.
            ii)Að smækkun lokinni skulu leifarnar hitaðar þannig að kjarnahitinn verði meiri en 133°C í a.m.k. 20 mínútur og þrýstingur (algildur), sem er haldið uppi með mettaðri gufu, sé a.m.k. 3 bör. Heimilt er að beita hitameðhöndluninni sem eina ferlinu, en hún getur líka verið dauðhreinsunarstig á undan eða eftir vinnslunni.
            iii)Vinnslan getur farið fram í framleiðslulotum eða í órofnu kerfi.
            b.Áhættuflokki 3, sbr. 5. gr., en hann skal uppfylla eftirfarandi lágmarkskröfur:
            i)Hámarksstærð bita sem fara inn í meltarann: 12 mm.
            ii)Lágmarkshiti í öllu efninu í meltaranum: 70°C.
            iii)Lágmarkstími í meltaranum við 70°C (allt efni): 60 mínútur.


              II. KAFLI
              Hreinlætis- og umgengnisreglur í jarðgerðarstöðvum.

              1.Starfsfólk skal bera sérstök hlífðarföt og skófatnað sem geymdur er í jarðgerðarstöðinni. Starfsfólk má ekki fara á milli óhreinna og hreinna deilda nema skipta um hlífðarföt og skófatnað. Tæki og verkfæri sem notuð eru við framleiðsluna og þrif má ekki fara með úr óhreinu deildinni yfir í hreinu deildina. Hengja skal upp skriflegar umgengnisreglur á áberandi stöðum.
              2.Hráefni skal vinna eins fljótt og unnt er eftir móttöku og geyma á söfnunarstað uns allt hefur verið tekið til vinnslu.
              3.Gáma, ílát og flutningatæki á að hreinsa og þvo strax eftir hverja losun á til þess ætluðum stað í jarðgerðarstöðinni eða lóð hennar og sótthreinsa reglulega og skal tryggt að fullunnar afurðir mengist ekki.
              4.Frárennslisvatn frá óhreinu deildinni skal meðhöndla þannig að tryggt sé að smitefni berist ekki út í umhverfið, þar með talið þvottavatn.
              5.Skrifleg áætlun um þrif og hreinlæti í jarðgerðarstöðinni skal ávallt vera tiltæk.
              6.Jarðgerðarstöð, byggingum, búnaði og umhverfi skal að staðaldri haldið hreinu og öllum tækjum og búnaði skal haldið í lagi. Mælitæki skulu sannreynd með reglulegu millibili.
              7.Meðferð og geymsla fullunninna afurða úr jarðgerðarstöð skal vera þannig að tryggt sé að þær mengist ekki.


                III. KAFLI
                Innra eftirlit fyrirtækja.

                1.Koma skal á og viðhalda innra eftirliti í jarðgerðarstöð samkvæmt aðferðafræði GÁMES-eftirlitskerfisins eða öðru jafngildu eftirlitskerfi að mati Landbúnaðarstofnunar og skal í innra eftirlitinu a.m.k. tekið á eftirtöldum þáttum:
                a.Mati á aðfluttu hráefni sem skal m.a. taka til flokkunar á hráefni, geymsluhitastigs og ferskleika þess.
                b.Uppsetningu flæðirits fyrir vinnslurásir.
                c.Ákvörðun mikilvægra eftirlitsstaða.
                d.Tilgreiningu viðmiðunargilda, skilyrða eða staðla sem þarf að uppfylla á viðkomandi eftirlitsstað.
                e.Eftirliti á mikilvægum eftirlitsstöðum.
                f.Ákvörðun úrbóta sem gripið skal til þegar niðurstöður eftirlits sýna frávik frá settum mörkum.
                g.Smækkun hráefnis, hitastigi, þrýstingi og vinnslutíma.
                h.Framkvæmd reglna um jarðgerðarstöðina.
                i.Kerfi til að ætíð sé hægt að rekja hvenær afurðir jarðgerðarstöðvarinnar voru hitameðhöndlaðar.
                j.Meindýravörnum samkvæmt skriflegri áætlun.
                k.Skrá skal halda og láta liggja frammi yfir aðflutt magn hráefnis og flokkun þess í 2. og 3. áhættuflokk. Einnig skrá yfir afurðir og flokkun þeirra og afrit af sölu afurða úr 2. áhættuflokki.
                2. Við öll meiriháttar frávik í mælingum skal:
                a.Tilkynna það tafarlaust til Landbúnaðarstofnunar.
                b.Kanna orsakir þess sem úrskeiðis hefur farið.
                3.Tryggja skal að afurðir úr jarðgerðarstöð sem hugsanlegt er að ekki hafi fengið tilskilda hitameðhöndlun eða mengaðar afurðir fari ekki frá jarðgerðarstöð fyrr en þær hafa verið endurunnar og rannsakaðar að því loknu. Sé það ekki unnt þarf sérstakt leyfi til notkunar afurðanna.


                  IV. KAFLI
                  Eftirlit Landbúnaðarstofnunar.

                  1.Landbúnaðarstofnun hefur reglulegt eftirlit með jarðgerðarstöðvum. Um innheimtu eftirlitsgjalds fer eftir gjaldskrá stofnunarinnar. Landbúnaðarstofnun hefur eftirlit með að ákvæði þessarar reglugerðar séu uppfyllt. Stofnunin skal taka sýni til rannsóknar reglulega og fyrirvaralaust. Auk þess skal stofnunin gera aðrar athuganir sem hún telur nauðsynlegar. Stofnunin skal hvenær sem er eiga greiðan aðgang að öllum hlutum jarðgerðarstöðvar, skráningum og niðurstöðum úr innra eftirliti hennar og fylgjast sérstaklega með:
                  a.Almennu hreinlætisástandi í jarðgerðarstöð, tækjabúnaði og vinnubrögðum og búnaði starfsfólks.
                  b.Skilvirkni innra eftirlits jarðgerðarstöðvar.
                  c.Örveruástandi afurðanna eftir að vinnslu er lokið.
                  d.Geymslu, flutningi og merkingu afurðanna.


                    V. KAFLI
                    Gæðaeftirlit með afurðum úr jarðgerðarstöðvum.

                    1.Strax eftir hitameðhöndlun skulu tekin sýni úr afurð úr jarðgerðarstöð og skulu þau vera laus við hitaþolin dvalargró sjúkdómsframkallandi baktería (Clostridium perfringens á ekki að finnast í 1 g).
                    2.Sýni tekin úr afurð jarðgerðarstöðvar og í afurðageymslu hennar skulu uppfylla eftirfarandi lágmarksstaðla:
                    Salmonella: Ekki til staðar í 25 g: n = 5, c = 0, m = 0, M = 0
                    Enterobacteriaceae: n = 5, c = 2, m = 10, M = 3 00 í 1 g
                    þar sem:
                    n = fjöldi sýna,
                    m = viðmiðunarmörk varðandi fjölda baktería. Niðurstaða er viðunandi ef fjöldi baktería er m eða lægri í öllum sýnum,
                    M = efri mörk fyrir heildarfjölda baktería. Niðurstaða er ófullnægjandi ef fjöldi baktería í einu sýni eða fleirum er hærri eða jafnt og M,
                    c = fjöldi sýna með heildarbakteríufjölda á milli m og M. Niðurstaðan telst viðunandi ef fjöldi baktería er m eða lægri í öðrum sýnum.


                    B_nr_820_2007.doc

                    Breytingar:
                    930/2008 - Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 820/2007 um meðferð og nýtingu á slátur- og dýraleifum.
                    679/2008 - Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 820/2007 um meðferð og nýtingu á slátur- og dýraleifum.

                     

                    Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000
                    Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dmr.stjr.is
                    Prentvænt