Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

999/2009


REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um útlendinga,
nr. 53 23. janúar 2003, með síðari breytingum.

1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, I:
  1. Á eftir ríkjaheitinu Makaó kemur: Makedónía (fyrrum sambandslýðveldi Júgóslavíu), að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum.
  2. Á eftir ríkjaheitinu San Maríno kemur: Serbía að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum en á ekki við um handhafa serbneskra vegabréfa sem gefin eru út af Serbnesku samræmingarstofnuninni (á serbnesku: Koodinaciona uprava).
  3. Á eftir ríkjaheitinu Suður-Kórea kemur: Svartfjallaland að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum.

2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 6. gr. og 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 öðlast gildi þegar í stað.


Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 18. desember 2009.

Ragna Árnadóttir.
Kristrún Kristinsdóttir.

B_nr_999_2009.doc

Stofnreglugerð:
053/2003 - Reglugerð um útlendinga.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt