REGLUGERÐ
um
skipulagsgjald.
1. gr.
Greiða skal skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati í eitt
sinn af hverri nýbyggingu sem reist er. Nýbygging telst hvert nýreist hús sem
virt er til brunabóta, svo og viðbyggingar við eldri hús ef virðingarverð
hinnar nýju viðbyggingar nemur a.m.k. 1/5 verðs eldra hússins. Skipulagsgjald
af mannvirkjum, sem ekki eru virt til brunabóta, skal nema 0,3% af stofnverði
þeirra.
Ekki skal greitt skipulagsgjald af þeim mannvirkjum sem
ekki eru háð byggingarleyfi nema stofnkerfum rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna
og fjarskipta utan þéttbýlis. Með stofnkerfi er í reglugerð þessari átt við
flutningskerfi, frá upptökum að dreifikerfi. Með þéttbýli er samkvæmt reglugerð
þessari átt við þyrpingu húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjarlægð milli
húsa fari að jafnaði ekki yfir 200 metra.
2. gr.
Sé um að ræða flutning húsa á nýja lóð skal greitt
skipulagsgjald ef virðingarverð hinnar fluttu húseignar hækkar sem nemur a.m.k.
1/5 verðs á fyrri stað. Sama gildir verði heimilað að byggja ný hús eða
endurbæta hús hafi fallið á þau snjóflóð eða skriður.
3. gr.
Eigendur nýrra stofnkerfa rafveitna, hitaveitna,
vatnsveitna og fjarskipta utan þéttbýlis skulu tilkynna Fasteignamati ríkisins
um stofnverð þegar mannvirkin hafa verið tekin í notkun. Eigendur skulu skila
sundurliðaðri greinargerð um kostnað þ.á m. um hönnunar-og eftirlitskostnað.
4. gr.
Skipulagsgjald fellur í gjalddaga þegar brunabótavirðing
hefur farið fram eða stofnverð tilkynnt og Fasteignamat ríkisins hefur tilkynnt
innheimtumanni ríkissjóðs þær fjárhæðir. Eindagi er mánuði síðar. Því fylgir
lögveð í eigninni og gengur það fyrir öllum öðrum veðböndum er á henni hvíla.
Innheimta má gjaldið með fjárnámi samkvæmt lögum nr. 90/1989.
5. gr.
Sýslumaður lögsagnarumdæmis sem húseign er í eða þar sem
lögheimili eiganda stofnkerfis er annast innheimtu skipulagsgjalds, en í
Reykjavík tollstjóri. Gera skal skil á gjaldinu til ríkisféhirðis með
skilagrein sem og öðrum ríkissjóðstekjum.
6. gr.
Fasteignamat ríkisins skal tilkynna innheimtumanni fjárhæð
brunabótavirðingar húseignar eða stofnverðs þar sem það á við, þegar eftir að
virðing hefur farið fram eða tilkynnt hefur verið um stofnverð og veita þeim
þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna innheimtu gjaldsins, þ.á m. skráða
eigendur húseigna samkvæmt fasteignaskrá.
Skipulagsstofnun skal aðstoða Fasteignamat ríkisins við
framkvæmd þessarar reglugerðar.
7. gr.
Úrskurðarnefnd skv. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 sker úr ágreiningi sem upp kann að koma vegna álagningar og innheimtu
skipulagsgjalda.
8. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. 6. mgr. 35. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 öðlast gildi frá og með 1. janúar 1998.
Frá þeim tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 676/1994 um
gjald af nýreistum húsum til greiðslu skipulagsgjalds, með breytingu frá 21.
september 1995.
Umhverfisráðuneytinu,
29. desember 1997.
Guðmundur
Bjarnason.
Ingimar Sigurðsson.
Word útgáfa af reglugerð