Reglugerð
um skipulag og
starfsemi náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum.
1. gr.
Starfrækt skal náttúrustofa Suðurlands í
Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær og önnur sveitarfélög í Suðurlandskjördæmi sem
gerast kunna aðilar að stofunni eiga og reka hana með stuðningi ríkissjóðs.
Ríkissjóður greiðir laun forstöðumanns í fullu starfi.
Framlag ríkissjóðs til stofnkostnaðar vegna húsnæðis- eða leigukostnaðar, eigi
það við, til innréttinga og bóka- og tækjakaupa getur numið allt að helmingi
kostnaðar og fer eftir því sem ákveðið er á fjárlögum hverju sinni, enda liggi
fyrir trygging um jafnhátt framlag frá heimaaðilum. Ríkissjóður er eigandi þess
framlags sem hann leggur til stofnkostnaðar.
2. gr.
Auk framlags skv. 1. gr. hefur stofan
tekjur af útseldri vinnu og annarri gjaldhæfri þjónustu. Renna þær óskiptar til
stofunnar og hafa ekki áhrif á framlög ríkissjóðs og heimaaðila skv. 1. gr.
3. gr.
Þær eignir sem til stofnkostnaðar teljast
skulu aðeins nýttar í þágu stofunnar nema fyrir liggi samþykki ráðuneytisins um
annað.
4. gr.
Hlutverk náttúrustofu Suðurlands í
Vestmannaeyjum er:
a) að stunda vísindalegar
rannsóknir á náttúru Suðurlands,
b) að safna gögnum og
varðveita heimildir um náttúrufar og stuðla að almennum náttúrurannsóknum og
skal einkum lögð áhersla á Suðurland og sérstöðu náttúrufars á þeim slóðum,
c) að stuðla að æskilegri
landnýtingu, náttúruvernd og fræðslu um umhverfismál bæði fyrir almenning og í
skólum á Suðurlandi,
d) að veita fræðslu um
náttúrufræði og aðstoða við gerð náttúrusýninga á Suðurlandi,
e) að veita Vestmannaeyjabæ
og öðrum sveitarfélögum á Suðurlandi umbeðna aðstoð og ráðgjöf á verksviði
stofunnar m.a. vegna nýtingar náttúrulegra auðlinda, skipulagsmála og mats á
umhverfisáhrifum framkvæmda, enda komi greiðsla fyrir.
5. gr.
Heimilt er náttúrustofu Suðurlands í
Vestmannaeyjum með sérstökum samningi að gerast aðili að sýningarsafni, en
fjárhagur hennar og safnsins skal vera aðskilinn.
6. gr.
Yfir náttúrustofu í Vestmannaeyjum skal
starfa sérstök stjórn, skipuð þremur mönnum og þremur til vara. Eigendur í
héraði tilnefna tvo en ráðherra einn og skal hann vera formaður. Sömu reglur
gilda um varamenn. Skipunartími stjórnar er milli reglulegra
sveitarstjórnarkosninga. Hlutverk stjórnar er að hafa eftirlit með rekstri
stofunnar, fjalla um og samþykkja fjárhagsáætlanir og fylgjast með fjárhag
hennar og starfsemi.
Kostnaður vegna starfa stjórnarinnar greiðist af stofunni.
7. gr.
Stjórn stofunnar ræður forstöðumann í fullt
starf. Hann skal hafa háskólapróf í náttúrufræði eða sambærilega þekkingu. Hann
stjórnar daglegum rekstri stofunnar, gerir fjárhagsáætlanir, fer með
fjármálaleg samskipti fyrir hönd stjórnar, ræður starfslið með samþykki
stjórnar og er í fyrirsvari fyrir stofuna.
Forstöðumaður skal sækja lögbundna fundi
Náttúrufræðistofnunar Íslands og náttúrustofa til að samræma starfsemina og
greina frá niðurstöðum rannsókna sem unnar hafa verið á stofunni.
8. gr.
Til að sinna hlutverki stofunnar skal
sérfræðingum og aðstoðarmönnum þeirra á stofunni sem stunda almennar
náttúrurannsóknir eða söfnun náttúrugripa og annarra heimilda um náttúruna
frjáls för um lönd manna en forðast skulu þeir óþarfa átroðning og skylt er að
greiða fullar bætur fyrir tjón sem þeir kunna að valda.
Sömu aðilum er í þessu skyni heimilt að safna náttúrugripum
hvar sem er án þess að endurgjald komi fyrir. Þetta gildir þó ekki ef um er að
ræða náttúrugripi sem fémætir eru fyrir landeiganda eða aðra rétthafa lands.
Komi í ljós við rannsókn verðmæti sem áður voru ókunn ber
rannsakanda að tilkynna rétthafa þess lands þar sem verðmætin eru.
9. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. 2. mgr. 12. og
16. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur og
öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytið,
12. desember 1995.
Guðmundur
Bjarnason.
Magnús
Jóhannesson.
Word útgáfa af reglugerð