Samgönguráðuneyti

790/2006

Reglugerð um bílaleigur. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um leigu á skráningarskyldum ökutækjum án ökumanns, til aksturs á vegum. Reglugerðin tekur þó ekki til starfsemi kaupleigu- eða fjármögnunarfyrirtækja eða leigu í eigin þágu eða til tengdra aðila.

Ekki þarf leyfi til reksturs bílaleigu ef um er að ræða útleigu annars konar skráningar­skyldra ökutækja en bifreiða svo sem þeirra sem ætluð eru til aksturs utan vega­kerfis, eins og fjórhjóla og vélsleða.

2. gr.

Umsókn um starfsleyfi.

Sækja skal um starfsleyfi til reksturs bílaleigu til Vegagerðarinnar á sérstökum eyðu­blöðum sem þar liggja frammi og eru jafnframt aðgengileg á rafrænu formi á heima­síðu Vegagerðarinnar. Umsókn skal skilað að minnsta kosti mánuði áður en fyrir­huguð starfsemi á að hefjast.

Umsækjendur geta verið hvort sem er einstaklingar, félög, fyrirtæki eða stofnanir. Í umsókn skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Nafn og kennitala umsækjanda.
  2. Nafn, kennitala og heimilisfang bílaleigu.
  3. Upplýsingar um fjölda starfsstöðva.
  4. Aðsetur fastrar starfsstöðvar.
  5. Staðsetning útibúa.
  6. Nafn og kennitala framkvæmdastjóra.
  7. Nöfn og kennitölur fyrirsvarsmanna útibúa.
  8. Hvenær starfsemin hófst, ef bílaleiga hefur haft leyfi áður.

Jafnframt skulu eftirfarandi gögn fylgja umsókn:

  1. Sakavottorð framkvæmdastjóra bílaleigunnar, fyrirsvarsmanna útibúa og stjórnarmanna ef um félag er að ræða.
  2. Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu skv. 4. gr.
  3. Búsetuvottorð framkvæmdastjóra og fyrirsvarsmanna útibúa.
  4. Staðfesting á búsforræði framkvæmdastjóra og fyrirsvarsmanna útibúa.
  5. Afrit eldra leyfis umsækjanda, ef það hefur verið gefið út.
  6. Listi yfir bifreiðar eða önnur ökutæki til útleigu þegar umsókn er gerð (tegund - árgerð - skráningarnúmer).

Vegagerðin aflar umsagnar lögreglustjóra í því umdæmi þar sem bílaleiga mun hafa fasta starfsstöð.

3. gr.

Starfsleyfi bílaleiga.

Sá einn getur fengið starfsleyfi Vegagerðarinnar til reksturs bílaleigu sem uppfyllir skilyrði 4. gr. laga um bílaleigur nr. 64/2000 með síðari breytingum. Starfsleyfi er veitt til fimm ára í senn og skal greiða gjald fyrir útgáfu þess kr. 25.000.

Um starfsleyfi fer að öðru leyti eftir ákvæðum 3. og 4. gr. laga um bílaleigur nr. 64/2000 með síðari breytingum.

4. gr.

Starfsábyrgðartrygging.

Áður en starfsleyfi er veitt skal umsækjandi leggja fram staðfestingu þess efnis að vegna bílaleigunnar hafi verið tekin starfsábyrgðartrygging hjá vátryggingafélagi sem starfsleyfi hefur hér á landi. Skal vátryggingin bæta leigutökum almennt fjártjón er stjórnendur og starfsmenn bílaleigunnar af gáleysi kunna að baka þeim vegna vanefndar á leigu­samningi, t.d. vegna afhendingartafa og endurgreiðslu fyrirframgreidds fjár sökum rekstrar­stöðvunar eða gjaldþrots bílaleigu. Einungis beint fjárhagslegt tjón leigutaka skal greitt af trygging­unni en ekki tjón sem rekja má t.d. til óþæginda eða miska.

Vátryggingin skal gilda vegna reksturs bílaleigunnar hvar sem er innan Evrópska efnahags­svæðisins.

Heimilt er að leggja fram samsvarandi bankaábyrgð í stað vátryggingar hjá vátrygg­inga­félagi að mati Vegagerðarinnar.

Starfsábyrgðartrygging bílaleigu skal vera 250 þús. krónur hið lægsta vegna hvers einstaks tjónsatviks. Heildarfjárhæð vátryggingabóta innan vátryggingarárs skal að lágmarki vera eftirfarandi miðað við fjölda bifreiða eða annarra ökutækja, til útleigu:

1 - 10 bifreiðar eða önnur ökutæki

1 millj. króna

11 - 25 bifreiðar eða önnur ökutæki

1,5 millj. króna

26 - 50 bifreiðar eða önnur ökutæki

2,5 millj. króna

51 - 75 bifreiðar eða önnur ökutæki

3,5 millj. króna

> 75 bifreiðar eða önnur ökutæki

5 millj. króna

Vátryggingarfjárhæðir eru miðaðar við vísitölu neysluverðs í maí 2000 (198,4 stig) og skulu breytast 1. maí ár hvert í samræmi við breytingar á vísitölunni til þess tíma.

Heimilt er að semja um eigin áhættu vátryggingartaka, en slíkt má í engu skerða rétt leigutaka til bóta úr hendi vátryggingafélags.

Vátryggingafélagi er heimilt að endurkrefja hvern þann sem valdið hefur tjóni af stórkost­legu gáleysi.

Skilmálar vátryggingar skulu kynntir Vegagerðinni áður en vátrygging er boðin bíla­leigum.

Falli starfsábyrgðartrygging úr gildi skal hlutaðeigandi vátryggingafélag eða banki tilkynna það viðkomandi bílaleigu (vátryggingartaka) og Vegagerðinni þegar í stað. Vátryggingartímabili telst ekki lokið fyrr en átta vikur eru frá því að tilkynnt var um tryggingaslit, nema önnur fullnægjandi trygging hafi verið tekin.

Uppfylli bílaleiga ekki skilyrði reglugerðar þessarar um starfsábyrgðartryggingu er henni skylt að leggja inn starfsleyfi sitt til Vegagerðarinnar.

5. gr.

Skyldur bílaleigu.

Bílaleiga skal í hvívetna leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Hún skal gæta þess að viðskiptamenn hennar njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör, svo og þess að leigutaka séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir skilmálar í samningum. Bílaleiga ber ábyrgð á verkum starfsmanna sinna við leigu bifreiða.

Bílaleiga skal rekin á fastri starfsstöð sem skal vera opin almenningi á tilgreindum tíma sem auglýstur skal með skýrum og ótvíræðum hætti og er skylt að hafa starfsstöð opna á auglýstum tíma. Sama gildir um opnunartíma útibúa bílaleiga.

Skylt er að leyfisbréf bílaleigunnar liggi frammi á fastri starfsstöð hennar og afrit þess í útibúum.

Ökutæki sem leigð eru út á grundvelli bílaleiguleyfis, skulu vera skráð sem slík hjá Umferðarstofu, í samræmi við þær reglur sem þar gilda á hverjum tíma um skráningu ökutækja um leigu í atvinnuskyni án ökumanns. Bílaleigu er óheimilt að leigja út ökutæki nema þau hafi áður verið skráð slíkri skráningu.

Bílaleiga skal tryggja að ökutæki til útleigu séu ætíð í góðu ásigkomulagi og fullnægi kröfum sem gerðar eru um þau. Bílaleiga skal færa ökutæki til útleigu til lögboðinnar skoðunar.

Bílaleiga skal bjóða upp á ökutæki til útleigu jafnt til almennings sem fyrirtækja.

Bílaleiga skal upplýsa erlenda leigutaka um íslenskar umferðarreglur, umferðarmerki og reglur um bann við umferð utan vega, bann við akstri á tilteknum hálendisvegum á hverju tíma og um hættur sem kunna að fylgja akstri utan þjóðvega, sérstaklega um hálendið. Jafnframt skal bílaleiga vekja sérstaka athygli leigutaka á hættu sem stafar af dýrum á vegum.

6. gr.

Leigusamningur.

Bílaleiga skal sjá um að ávallt sé gerður skriflegur leigusamningur um leigu á bifreið eða öðru ökutæki sem undirritaður skal af leigutaka og leigusala.

Bílaleiga skal kynna leigutaka efni leigusamningsins og sérstaklega þær skyldur sem hann tekur á sig með undirritun leigusamningsins.

Leigusamningurinn skal gerður í að minnsta kosti tveimur eintökum og bílaleiga og leigutaki heldur hvor um sig einu eintaki leigusamningsins.

Í leigusamningi skulu eftirfarandi atriði að minnsta kosti koma fram:

  1. Fullt nafn bílaleigu, kennitala og heimilisfang.
  2. Fullt nafn leigutaka, kennitala og heimilisfang.
  3. Númer vegabréfs ef ekki er um íslenska ríkisborgara að ræða.
  4. Nafn þess eða nöfn þeirra sem heimild hafa til að aka bifreiðinni eða ökutækinu.
  5. Númer ökuskírteinis.
  6. Skráningarnúmer bifreiðar eða ökutækis.
  7. Upphaf og lok leigutíma miðað við dag og klukkustund.

Að öðru leyti skulu leiguskilmálar vera samkvæmt fylgiskjali með reglugerð þessari. Leiguskilmálar skulu prentaðir á bakhlið leigusamnings í það minnsta á íslensku og ensku.

Bílaleiga skal varðveita leigusamning í að minnsta kosti eitt ár frá undirritun hans.

7. gr.

Leigutaki.

Sá einn sem hefur tilskilin ökuréttindi, getur leigt bifreið eða annað ökutæki. Bílaleigu er þó heimilt að gera leigusamning við einstakling sem ekki hefur tilskilin ökuréttindi, enda tilnefni hann ökumann í leigusamningi og má sá aka bifreiðinni eða ökutækinu. Skal ökumaður ávallt uppfylla framangreind skilyrði. Sama gildir ef leigutaki er félag eða annar lögaðili.

Leigusamningur skal ávallt vera í bifreiðinni meðan á leigutíma stendur.

Leigutaka er óheimilt að nota bifreiðina eða ökutækið til flutnings farþega gegn greiðslu, lána það eða framleigja.

Leigutaka er óheimilt á leigutíma, án samþykkis bílaleigu, að flytja ökutækið sem hann hefur á leigu úr landi.

8. gr.

Refsiákvæði o.fl.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga um bílaleigur nr. 64/2000 með síðari breytingum.

9. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 8. gr. laga um bílaleigur nr. 64/2000 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 398/2000 og reglugerð nr. 733/2001.

Samgönguráðuneytinu, 31. ágúst 2006.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica