REGLUGERÐ
um
Einkaleyfastofu.
1. gr.
Einkaleyfastofan er ríkisstofnun undir yfirstjórn
iðnaðarráðherra. Vernd þeirra réttinda er stofnunin fjallar um tekur til
íslenskrar lögsögu. Stofnunin hefur aðsetur í Reykjavík.
2. gr.
Hlutverk Einkaleyfastofu er einkum:
1) að fara með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki,
hönnunarvernd og önnur hliðstæð réttindi sem kveðið er á um í lögum,
reglugerðum og alþjóðasamningum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar.
2) að veita einstaklingum, stofnunum og atvinnufyrirtækjum
upplýsingar og ráðgjöf varðandi hugverkaréttindi í iðnaði.
3) að stuðla að því að ný tækni og þekking sem felst í
skráðum hugverkaréttindum verði aðgengileg almenningi.
3. gr.
Tekjur stofnunarinnar eru gjöld samkvæmt ákvæðum reglugerða
sem settar eru á grundvelli laga um hugverkaréttindi á sviði iðnaðar og önnur
hliðstæð þjónustugjöld.
4. gr.
Iðnaðarráðherra skipar forstjóra Einkaleyfastofu og er hann
jafnframt vörumerkjaskrárritari.
Forstjóri stýrir stofnuninni, ræður starfslið og ber ábyrgð
á fjárreiðum hennar.
5. gr.
Stofnunin gefur m.a. út:
1) rit fyrir lögboðnar birtingar og tilkynningar varðandi
vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar,
2) framlagðar einkaleyfisumsóknir og skráð einkaleyfi,
3) ársyfirlit um skráð hugverkaréttindi og breytingar á
þeim,
4) leiðbeiningar um frágang umsókna á hverju verndarsviði.
Stofnunin gerir ársyfirlit til
Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO) varðandi hugverkaréttindi á sviði iðnaðar.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 69. gr.
laga nr. 17/1991 um einkaleyfi og 12. og 46. gr. laga nr. 47/1968 um vörumerki,
sbr. lög nr. 31/1984.
Reglugerðin öðlast gildi 1. júlí 1991.
Iðnaðarráðuneytið,
24. apríl 1991.
Jón Sigurðsson.
Björn Friðfinnsson.
Word útgáfa af reglugerð