Reglugerð
um breytingu á
reglugerð nr. 53 27. febrúar 1976 um mannflutninga í loftförum, sbr. rg. nr.
293/1979, 443/1979, 251/1984 og 33/1993 um breytingar á henni.
1. gr.
Grein 4.1 orðist svo:
Lofthæfisskírteini eða flughandbók loftfars segir til um
hvort tóbaksreykingar eru leyfðar í loftfarinu. Reykingar má aðeins leyfa í
stjórnklefa og farþegaklefa, en ekki á salernum eða öðrum afmörkuðum hlutum
loftfarsins.
Óheimilt er að reykja í atvinnuflugi með farþega á
íslenskum innanlandsflugleiðum. Frá og með 26. mars 1995 er óheimilt að reykja
í öllu atvinnuflugi með farþega milli Íslands og annarra ríkja.
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 186.
og 188. gr. laga um loftferðir nr. 34 21. maí 1964 og gildir um íslensk og
erlend loftför sem íslenskur aðili notar eða ræður yfir, hvar sem þau eru
stödd, staðfestist hér með til að öðlast gildi 26. mars 1995 og birtist til
eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið,
30. janúar 1995.
Halldór
Blöndal.
Halldór S.
Kristjánsson.
Word útgáfa af reglugerð