Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

485/1989

Hafnarreglugerð fyrir Garðabæ.

I. KAFLI Höfnin og stjórn hennar.

1. gr. Takmörk hafnarinnar.

1.1 Hafnarsvæði Garðabæjar er fyrir allri strandlengju Garðabæjar og er nánar lýst þannig:

1.2 Takmörk á sjó eru: Lína úr Eskinestá í suðvesturenda Arnarness.

1.3 Takmörk á landi eru: Frá suðvesturenda Arnarness að Eskinestá ræður stórstraumsflóðborð.

1.4 Landsvæði hafnarinnar skiptast í:

- Bryggjur.

- Afgreiðslusvæði.

- Götur.

- Iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn hafnarinnar.

2.1 Garðabær er eigandi hafnarinnar. Bæjarstjórn fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytis.

2.2 Hafnarstjórn fer með framkvæmd hafnarmála í umboði bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skal skipuð fimm fulltrúum og jafnmörgum til vara, er bæjarstjórn kýs. Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og bæjarstjórnar.

2.3 Auk hinna kjörnu fulltrúa á hafnarstjóri sæti í hafnarstjórn með málfrelsi og tillögurétti.

2.4 Hafnarstjórn kýs sér formann, er boðar hana til fundar og stjórnar þeim. Hafnarstjóri undirbýr má1, sem leggja á fyrir hafnarstjórn og veitir viðtöku erindum til hennar.

3. gr. Hlutverk og valdsvið hafnarstjórnar.

3.1 Hafnarstjórn gerir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð, þar sem fram kemur viðhald hinna ýmsu hafnarmannvirkja svo og nýbyggingar. Hafnarstjórn skal leggja fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

3.2 Hafnarstjórn hefur endanlegt ákvörðunarvald um:

- Ráðningu fastra starfsmanna, sbr. 5. gr.

- Rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar, sem leigt er til skamms tíma.

- Leyfisveitingar til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæða fyrir starfsemi er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

3.3 Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar og bygginganefndar, áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn. Innan hafnar má ekki gera nein hafnarmannvirki, né breyta þeim mannvirkjum sem nú eru og ekki heldur fylla upp, né dýpka út frá landi, nema leyfi hafnarstjórnar og/eða bæjarstjórnar komi til. Hafnarstjórn hefur eftirlit á hafnarsvæðinu með byggingu mannvirkja, sem undanþegin eru ákvæðum byggingarlaga nr. 54/1978.

4. gr. Hlutverk hafnarstjóra.

4.1 Hafnarstjóri er skipaður af bæjarstjórn að fenginni tillögu hafnarstjórnar og fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar. Honum ber í hvívetna að gæta hagsmuna hafnarsjóðs. Í erindisbréfi má setja nánari reglur um starfssvið hafnarstjóra.

4.2 Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.

4.3 Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans eða þeirra sem hann felur slík störf.

5. gr. Aðrir starfsmenn hafnarinnar,

5.1 Hafnarstjórn ræður aðra fasta starfsmenn hafnarinnar en hafnarstjóra. Vikukaupsmenn og fólk til afleysinga ræður hafnarstjóri.

5.2 Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna hafnarvörslu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

5.3 Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum sér óréttur gerður af starfsmönnum hafnarinnar getur kann kært það fyrir hafnarstjóra, en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

II. KAFLI Umferð skipa.

6. gr. Skilgreining á skipi.

6.1 Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far, sem nota má sem flutningstæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað.

7. gr. Almennar reglur við komu og brottför.

7.1 Við komu og brottför að degi til skulu skip, önnur en íslensk fiskiskip hafa þjóðfána við hún.

7.2 Þjónusta við skip er unnin af hafnarvörðum undir stjórn hafnarstjóra. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðið hafa opna talstöð á viðskiptabylgju Garðabæjar.

7.3 Sérhvert skip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarvarða með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmann með minnst 24 klst. fyrirvara. Tilkynna skal brottför með minnst 3 klst. fyrirvara.

7.4 Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa skipaþjónustu eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á:

- Skipsnafn, skipaskrárnúmer, þjóðerni, stærð samkvæmt mælibréfi, djúprista og síðasti viðkomustaður.

- Nafn skipstjóra.

- Stærð áhafnar og fjöldi farþega.

- Tegund og magn farms.

- Um hættulegan farm, tegund (tækniheiti og IMDG flokkun) og magn.

- Um hugsanlega sjúkdóma um borð.

- Nafn umboðsmanns.

7.5 Búnaður skipa skal uppfylla kröfur alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest svo og sérreglna Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipstjórnarmenn skulu sýna hafnarstarfsmönnum, ef óskað er, skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna.

8. gr. Umferð um höfnina.

8.1 Skip sem kemur til hafnar skal leita upplýsinga hjá hafnarverði eða umboðsmanni hvar binda megi skipið við bryggju. Óheimilt er að binda skip annarsstaðar en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.

8.2 Skip mega ekki láta vélar ganga af svo miklu afli að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi hætta af straumi frá aðal- eða þverskrúfum.

8.3 Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa í skipum á höfninni.

8.4 Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

8.5 Skemmd- og smábátar þar með taldir ára- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt forðast siglingaleiðir stærri skipa, sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaka aðgæslu er skip eru að leggja að og frá viðlegu.

9. gr. Skip í viðlegu.

9.1 Skip telst í viðlegu, er það liggur við hafnarbakka, bryggju, þ.m.t. utan á öðru skipi, eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.

9.2 Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undantekin eru skip, sem hafa fastar viðlegur eða umsamin forgangsafnot hafnarbakka og skemmtiferðaskip.

9.3 Ekki má festa skipum við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarstjóra þess ekki nægilega gætt, getur kann krafist að bætt sé úr því tafarlaust.

9.4 Þegar búið er að leggja skipi við bryggju, má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarstjóra, en skyldur er skipstjóri að flytja skipið, ef hafnarstjóri skipar svo fyrir. Skip sem ekki er verið að lesta eða loss, eða eru ekki í rekstri, mega aldrei liggja svo í höfninni að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið samkvæmt ákvæðum þessa töluliðs eða dragist flutningur þess yfir þann tíma, er hafnarstjóri hefur fyrirskipað er hafnarstjóra heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.

9.5 Í sérhverju skipi skal að jafnaði vera einn maður að minnsta kosti, er tekið getur á móti skipunum starfsmanna hafnarinnar og framkvæmt þær. Skal kann sjá um, að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni, er leiða kann af vanrækslu í þessu efni. Heimilt er hafnarstjóra að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða, enda séu hjá hafnarvörðum nöfn skipstjórnarmanna, sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.

9.6 Hafnarverðir ákveða legur fyrir skip 12 brl. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siglt í höfn, skal eigandi tilkynna það hafnarvörðum. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarstjóra samkvæmt nánari reglum.

10. gr. Skip í lægi.

10.1 Skip telst í lægi, er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri.

10.2 Skipum, sem leggja skal í lægi, má aðeins leggja á þeim stöðum, er hafnarstjóri leyfir. Skipum skal lagt undir umsjá hafnarstjóra og legufæri ákveðin í samráði við hann, enda liggi fyrir samþykki tryggingarfélags skipsins. Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda. Meðan skip liggur mannlaust í lægi, skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út í það til þess að líta eftir, hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað og ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt, sem auðið er. Áður en skipstjóri fer af skipinu, skal hann skriflega tilgreina hafnarstjóra siglingafróðan mann, sem búsettur er í Garðabæ og hafa skal umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarstjóri til hans öllum fyrirskipunum, sem skipið varða. Sér hann um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því, skal hafnarstjóri láta fullnægja þeim, en skipseigandi greiði allan kostnað, sem af því leiðir.

III. KAFLI Afnot hafnarmannvirkja og landsvæða.

11. gr. Lestun og losun, almennt.

11.1 Afnot hafnarmannvirkja og lands er öllum heimil að fengnu leyfi hafnaryfirvalda og gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.

11.2 Hafnarstjórn ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum, sem geymdar eru á hafnarsvæðinu.

11.3 Við lestun og losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum, né sturta varningi af bílum án eðlilegs hlífðarlags.

11.4 Hafnarstjórn getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. Í sérstökum tilfellum er þó hafnarstjóra heimilt að veita undanþágu frá slíku.

11.5 Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðinu utan eigin leigusvæða án leyfis hafnaryfirvalda.

11.6 Þeir munir eða vörur, sem skipað er upp eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu á slíkum varningi. Hafnarstjóri getur flutt vörur og muni, sem geymdir eru í óleyfi, burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

11.7 Við lestun og losun á vikri, sandi, kolum og öðru þess háttar er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka, svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarstjóri stöðvað verkið, uns hætt hefur verið úr því sem áfátt er.

11.8 Þegar lokið er lestun eða losun skal sá er séð hefur um lestun eða losun, láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hefur verið. Farist það fyrir, skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað sem af því leiðir.

12. gr. Meðferð eldfims og hættulegs varnings.

12.1 Skip, sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni, sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu, mega ekki leggjast að bryggju, fyrr en leyfi hefur verið vein til þess. Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarstjóra og slökkviliðsstjóra um farminn 24 klst. fyrir áætlaðan komutíma. Tilkynningarskyldan nær til efna, sem samkvæmt alþjóðareglum (International Maritime Dangerous Goods Code) flokkast í flokka 1, 2, 3, 4 og 5. Í tilkynningu skal greint tækniheiti efna og UN-tölu þeirra skv. IMDG-reglum, magn, pökkun og lestun. Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: púður, dýnamít, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toluol, kosangas, kalciumkarbit, ammoniumnitrat, natríumklórat.

12.2 Losun á vöru sem um ræðir í þessari grein skal að jafnaði framkvæmd strax og skip leggst að bryggju og á undan losun á öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast og skal skip láta strax úr höfn að lestun lokinni. Álíti hafnarstjóri að hætta geti stafað af lestun eða losun eldfimrar vöru getur hann stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar.

12.3 Skylt er að hafa öryggisvörð við skip, sem er að lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarstjóri getur ákveðið að lestun og losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka, þar sem tryggast er talið. Varningurinn skal geymdur á svæði, sem hafnarstjóri samþykkir. Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar, sbr. ráðleggingar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) um öryggi við flutning, meðferð og geymslu á hættulegum efnum á hafnarsvæðinu. Skip sem flytja eldfim efni, skulu á daginn hafa uppi rutt flagg (merkjatákn B) á framsiglu, en á nóttu rautt ljósker. Í skipum sem flytja eldfim efni, má eigi kveikja ljós eða eld nema undir kötlum skipsins eða í eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.

IV. KAFLI Um hafnargjöld í Garðabæ.

13. gr. Um hafnargjöld.

13.1 Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám er settar skulu í samræmi við ákvæði 13. gr. hafnalaga.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

14. gr. Löggæsla á hafnarsvæðinu, umferð og fleira.

14.1 Lögreglan í Garðabæ hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

14.2 Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga er bannað að dvelja á landi hafnarinnar, ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hverskonar ökutækja um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar á eigin áhættu og ábyrgð.

14.3 Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

14.4 Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

14.5 Hafnarstjóra skal tilkynnt um allt það sem bjargað er í höfninni, en hann gefur lögreglunni skýrslu um það.

15. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

15.1 Ef skip lendir á grynningum eða sekkur, þar sem það að áliti hafnarstjóra tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal færa það í burtu svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á kostnað eigandans og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum, ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis.

15.2 Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu þá skal hafnarstjóri fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.

16. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

16.1 Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina.

16.2 Bannaður er hvers konar hvalskurður í eða við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

16.3 Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða annað sem veldur mengun. Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir svo olía renni ekki í sjóinn af þilfari, verði óhapp m.a. með því að loka afrennslisleiðum frá þilfari. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa, sem ekki hafa að mati hafnarstarfsmanna gengið forsvaranlega frá þessum atriðum. Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.

17. gr. Beiðni um skilyrði fyrir þjónustu.

17.1 Allir þeir sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnarinnar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu, sem eru í vanskilum með gjöld hafnarinnar.

18. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

18.1 Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skal gefa skipstjóra, en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans, samkvæmt gr. 9.5 Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina og er það jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

19. gr. Um skaðabótaskyldu.

19.1 Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum reglum. Ef samningum um skaðabætur verður ekki við komið, má ákveða þær af tveim dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en einn mánuður er liðinn frá því að matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt af þrem dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist yfirmats, ef það gengur honum ekki í vil.

19.2 Nú veldur skip skemmdum í höfninni eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar og er þá óheimilt að flytja skipið úr höfninni áður en málið er útkljáð, nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra. Bótakröfum hafnarsjóðs fylgir lögtaksréttur sbr. 38. gr. hafnalaga.

20. gr. Brot, sektarákvæði og meðferð mála.

20.1 Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna í hafnarsjóð Garðabæjar. Til tryggingar sektum og vangoldnum gjöldum má leita kyrrsetningar sbr. 39. gr. hafnalaga.

20.2 Með má1 út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 69, 28. maí 1984, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Samgönguráðuneytið, 29. september 1989.

Steingrímur J. Sigfússon.

Helgi Jóhannesson

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.