Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

461/2001

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 50/1984 um notkun eiturefna og hættulegra efna
í landbúnaði og garðyrkju og til útrýmingar meindýra.

1. gr.
5. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Veita má leyfi til innflutnings á efnum, sem ekki hafa hlotið viðurkenningu og verið skráð, ef um tilraunastarfsemi er að ræða eða leysa þarf bráðan vanda, sem ekki verður leystur á annan hátt. Slíkar undanþágur skulu miðast við takmarkað magn eða vera veittar í afmarkaðan tíma, að hámarki í eitt ár í senn. Umsóknum um undanþágur skulu fylgja með-mæli sérfræðinga Bændasamtaka Íslands, sérfræðinga Rannsóknastofnunar landbúnaðarins eða annarra dómbærra manna. Leita skal álits Hollustuverndar ríkisins varðandi þá skilmála er um undanþáguna skulu gilda.


2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 16. gr. laga nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum.

Reglugerðin tekur gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 14. júní 2001.

Siv Friðleifsdóttir.
Ingimar Sigurðsson.

    nr 461 2001.doc
Stofnreglugerð:
050/1984 - Reglugerð um notkun hættulegra efna í landbúnaði og garðyrkju og til útrýmingar meindýra

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt