Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

206/1976

Hafnarreglugerð fyrir Tjörneshöfn á Tjörnesi.

I. KAFLI Takmörk hafnarinnar.

1. gr.

Takmörk Tjörneshafnar eru:

Frá Hallbjarnarstaðaá að norðan, suður með Ytri-Tungubökkum að svokölluðum Námahússgrunni.

II. KAFLI Stjórn hafnarinnar og rekstur.

2. gr.

Hreppsnefnd Tjörneshrepps hefur á hendi stjórn og rekstur hafnarinnar undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins. Hún kýs á fyrsta fundi sínum þriggja manna hafnarstjórn og jafnmarga til vara og skipar formann hennar og varaformann, sem boðar til funda í hafnarstjórn og stýrir þeim.

Kjörtímabil hafnarstjórnar skal vera hið sama og sveitarstjórnar. Hafnarvörður, eða sá sem sér um daglegan rekstur og eftirlit hafnarinnar, á sæti á fundum hafnarstjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.

3. gr.

Hreppsnefnd skipar hafnarsljóra, hafnarvörð eða umsjónarmann og starfsmenn eftir tillögum hafnarstjórnar og setur þeim erindisbréf, þar sem verksvið þeirra er ákveðið, ef þurfa þykir. Daglegan rekstur, framkvæmdir, eftirlit og umsjón annast hafnarvörður í samráði við hafnarstjórn.

III. KAFLI Um almenna reglu.

4. gr.

Skip telst í reglugerð þessari hvert fljótandi far.

5. gr.

Sérhver skipstjóri, sem á skipi sínu kemur á höfnina, að bryggju eða að hafnarkanti, skal gæta fyllsta öryggis í allri umferð á höfninni. Hann skal vera kunnugur ákvæðum reglugerðar hafnarinnar.

6. gr.

Hafnarvörður sér um að gætt sé reglu á höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða boði hans og banni svo og þeirra manna, er settir eru til að gæta reglu. Þyki einhverjum sér óréttur ger af starfsmönnum hafnarinnar getur hann kært fyrir hafnarstjórn, en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi sínu.

7. gr.

Þeim, sem ekkert lögmætt erindi eiga, er óheimilt að dvelja á landi hafnarinnar, ef þeir með því tálma fermingu eða affermingu eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers kyns ökutækja um bryggjur og hafnarbakka.

8. gr.

Skylt er að gæta ýtrustu varúðar í meðferð opins elds og óbyrgðra ljósa í skipum á höfninni, sem flytja eldfim efni, sem sprengihætta stafar af. Hið sama gildir um tóbaksreykingar og ber ef þurfa þykir, að banna þær á þeim stöðum, þar sem um eldhættu eða sprengihættu gæti verið að ræða.

Notkun skotvopna er bönnuð á hafnarsvæðinu.

9. gr.

Ekki má kasta í höfnina, hvorki frá skipum né frá hafnarbakka eða bryggjum, kjölfestu, ösku, dauðum fiski, fiskúrgangi, veiðarfærum, trossum, vírum, matarleifum, umbúðum eða neins konar rusli. Allt þess háttar skal flutt á þann stað, sem hafnarvörður vísar til.

Ekki má láta olíu eða vatn mengað olíu renna í höfnina. Þegar olía er látin í skip eða losuð úr því, skal þess gætt, að ekkert af henni renni í höfnina, á hafnarmannvirki eða á þilfar skipsins.

IV. KAFLI Um legu skipa í höfninni og afgreiðslu þeirra.

10. gr.

Þegar skip leitar hafnar, skal skipstjóri eða umboðsmaður skipsins tafarlaust snúa sér til hafnarstjóra, er vísar honum á legustað fyrir skipið.

Leggist skip við hafnarmannvirki, skulu landfestar bundnar, þar sem starfsmenn hafnarinnar segja til um.

11. gr.

Ef sjúkdómar eru á skipinu eða ástæða þykir til að ætla, að sótthætta geti stafað af þvi, ber hafnarstjóra að sjá um að fylgt sé þeim reglum, sem settar eru í lögum um varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands.

12. gr.

Skip, sem ekki er verið að ferma eða afferma, eða ekki er unnið við, mega aldrei liggja þannig á höfninni að þau tálmi vinnu við önnur skip, og skal skylt að hlýða boðum starfsmanna hafnarinnar um það, hvert þau skuli flutt. Ef ekki er orðið við boðum starfsmanna hafnarinnar í þessum efnum, er heimilt að færa skipið á kostnað eiganda.

Brottfarartíma skips skal skipstjóri tilkynna hafnaryfirvöldum með minnst tveggja tíma fyrirvara..

13. gr.

Sé nauðsynlegt talið að skipum, sem fermd eru eða affermd sé lagt hverju við hliðina á öðru, er heimilt að flytja farm þeirra skipa, er utar liggja yfir þilfar hinna. Skipshöfn og farþegum þeirra skipa, sem utar liggja, er einnig heimil nauðsynleg umferð um þilför þeirra skipa, er nær liggja.

14. gr.

Í sérhverju skipi, sem ekki hefur leyfi hafnarvarðar til að liggja mannlaust á höfninni, skal jafnan vera a. m. k. einn maður, er getur tekið við fyrirskipunum frá starfsmönnum hafnarinnar og framkvæmt þær í samræmi við það, sem reglugerð þessi býður.

15. gr.

Eigi má festa skipum við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa, að tilvísun hafnarvarðar. Séu landfestar úr járni, skulu þær vera klæddar þar sem þær hvíla á hafnarbakkanum eða bryggjunni. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka, og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarverði þess ekki nægilega gætt, getur hann krafist. þess að bætt sé úr því tafarlaust.

Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju óski hafnarvörður þess.

16. gr.

Skip mega ekki láta vélarnar ganga af svo miklu afli, að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi af því hætta.

Ef skip veldur skemmdum á bryggjum, tækjum eða öðrum mannvirkjum, skal það að fullu bætt af viðkomandi skipi.

17. gr.

Ekki má krækja hökum í bryggjur eða hafnarbakka. Ekki mega skip hleypa vatni á bryggju eða hafnarbakka, hvorki við þvott á þilfari né heldur er þau hleypa burt vatni á annan hátt. Búa skal svo um með hlífum að vatnið fari beint í höfnina.

18. gr.

Ef skip lendir á grynningum og sekkur, þar sem það að áliti hafnarstjórnar tálmar greiðri notkun hafnarinnar eða umferð um hafnarsvæðið, skal fjarlægja það svo fljótt, sem við verður komið. Verði dráttur á því, má hafnarvörður láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum.

19. gr.

Áður en kjölfesta er flutt á skip eða úr skipi, skal hafnarverði gert viðvart og ákveður hann þá hvar losun eða lestun á kjölfestu, sandi, kolum og öðru þess háttar fer fram. Skylt er að hafa nægilega tryggar hlífar á milli skipsins og hafnarbakka, bryggjunnar eða bátanna, þannig að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarvörður stöðvað verkið, uns umbætur hafa farið fram.

Skipstjóri skal sjá um að kjölfesta sú, sem flutt hefur verið á land úr skipi hans, sé þegar í stað flutt burt af löndunarstaðnum þangað, sem hafnarvörður vísar til.

20. gr.

Þegar lokið er fermingu eða affermingu skal eigandi skips láta hreinsa bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hafa verið, sé þess talin þörf. Farist það fyrir, skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en eigandi Farms eða skips greiði þann kostnað er af því leiðir.

V. KAFLI Um skip, sem lagt er í lægi.

21. gr.

Skipum má leggja í lægi á höfninni með sérstöku leyfi hafnarnefndar, sé það Gert undir umsjón hafnarvarðar, sem ákveður legustaðinn, legufærin og fyrirkomulag allt, er varðar lagningu skipsins.

22. gr.

Meðan skip liggur mannlaust í lægi á höfninni, skal ekki sjaldnar en á eins mánaðar fresti fara út í það til að líta eftir hvort legufæri eða annað hefur farið úr lagi eða bilað. Ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt, sem auðið er.

Leyfi hafnarstjórnar til að leggja skipi í lægi, er bundið því skilyrði, að ef skipið sekkur láti eigandi þess taka það upp eða sprengja það sundur, svo það skemmi ekki höfnina. Sé því ekki fullnægt innan tiltekins frests, getur hafnarstjórnin látið framkvæma verkið á kostnað eiganda.

23. gr.

Heimilt er að leggja skipi í lægi á höfninni, þó það sé mannlaust, sé það svo þétt, að áliti hafnarstjórnar, sem getur framkvæmt eða látið framkvæma á því rannsókn á kostnað eiganda, að ekki stafi af því nein hætta.

A skipum þessum skal tendrað ljós samkvæmt reglum þeim, sem settar eru í alþjóðasjóferðareglum um skip, er liggja fyrir akkeri.

Áður en skipstjóri fer af skipinu, skal hann skriflega tilkynna hafnarstjórn um umsjónarmann, búsettan í því lögsagnarumdæmi, sem höfnin er í, sem hafa skal umsjón skipsins á hendi og skal skipstjóri ganga úr skugga um, að hafnarnefnd sé samþykk útnefningu umsjónarmannsins. Hafnarnefnd getur krafist, ef henni finnst ástæða til, að umsjónarmaður hafi skipstjórnarréttindi og hafi búsetu það nálægt hafnarsvæðinu að auðvelt sé að ná til hans í tæka tíð, er færa þarf skipið eða til annarra þeirra aðgerða, er skipið snertir.

Hafnarvörður beinir til umsjónarmanns öllum þeim fyrirskipunum er skipið varða, en umsjónarmaður annað hvort framkvæmir fyrirskipanir hafnarvarðar, eða sér um að þær séu framkvæmdar. Verði dráttur á því, skal hafnarvörður láta framkvæma verkið á kostnað skipseiganda.

VI. KAFLI Um fermingu og affermingu eldfimra vökva og sprengiefna.

24. gr.

Skip, sem flytja eldfim efni svo sem steinolíu, bensín, aceton, terpentínu eða aðra álíka eldfima vökva, sprengiefni, svo sem púður, dýnamit, geomit eða þess konar efni, mega ekki fara inn á höfnina fyrr en tilkynnt hefur verið um farm til hafnarstjóra, og afferming leyfð undir eftirliti brunavarðar, ef til þess þykir ástæða. Um útskipun á sams konar farmi gilda sömu varúðarreglur.

25. gr.

Skip, sem hafa meðferðis þau efni, sem nefnd eru í næstu grein hér á undan, skulu, er þau koma inn á höfnina með þess konar farm, hafa á framsiglutoppi alþjóðlegt merkjaflagg með bókstafnum "B" að degi til en að næturlagi rautt ljós í þess stað. Merki skal hafa uppi svo lengi sem skipið er í höfn og um hættu getur verið að ræða. Álíti hafnarstjóri, að hætta geti stafað af fermingu eða affermingu eldfimrar vöru, er honum heimilt að stöðva verkið, uns gerðar hafa verið nauðsynlegar varúðarráðstafanir.

VII. KAFLI Um gjöld til hafnarinnar.

26. gr.

Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrá, er hafnarstjórn semur í samræmi við 26. gr. hafnalaga og samgönguráðuneytið staðfestir.

VIII. KAFLI Ýmis ákvæði.

27. gr.

Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar, tækjum og útbúnaði, fer eftir almennum reglum.

Hafnarsjóður ber ekki ábyrgð á tjóni, sem verða kann á eignum (skipum, munum eða öðrum verðmætum), manna eða félaga, ef þeir hafa vanrækt að fara eftir fyrirmælum hafnarstjóra eða starfsmanna hafnarinnar.

28. gr.

Engum, sem bakað hefur sér refsingu eða skaðabótaskyldu fyrir brot á reglugerð þessari, heimilast að fara burtu úr höfninni meðan mál hans er óútkljáð, nema hann setji tryggingu, sem hafnarnefnd tekur gilda.

29. gr.

Hverja þá skipun, sem samkvæmt þessari reglugerð heimilast að gefa forráðamönnum skips, má gefa stýrimanni, ef skipstjóri er ekki á skipi, né heldur umboðsmaður hans. Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina og er það jafngilt því, sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

30. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 100 000.00, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna í hafnarsjóð.

31. gr.

Með mál út af reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum, nr. 45 24. apríl 1973, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Samgönguráðuneytið, 11. maí 1976.

Halldór E. Sigurðsson.

Kristinn Gunnarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.