Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 30. des. 2003

416/2002

Reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

I. KAFLI Tilgangur og gildissvið.

1. gr.

Tilgangur reglugerðar þessarar er að hindra að sjúkdómar berist til landsins með innfluttum sláturafurðum, eggjum, mjólkurafurðum og öðrum vörum sem reglugerðin tekur til. Jafnframt að koma í veg fyrir að fluttar verði til landsins hráar afurðir dýra sem fengið hafa vaxtaraukandi efni á eldisskeiðinu.

2. gr.

Reglugerð þessi gildir um innflutning á hvers konar afurðum dýra og öðrum vörum, sem smitefni geta borist með er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum.

II. KAFLI Varnir gegn dýrasjúkdómum.

3. gr.

Eftirtaldar afurðir dýra og vörur sem geta borið með sér smitefni er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum er óheimilt að flytja til landsins sbr. þó nánari útlistun í IV. kafla reglugerðarinnar:

a. Hrátt kjöt, unnið sem óunnið, svo og innmat og sláturúrgang.
b. Kjöt á beini af klaufdýrum.
c. Dýrafóður sem inniheldur sláturúrgang, t.d. kjötmjöl, beinamjöl, fóðurvörur unnar úr afurðum eða úrgangi spendýra og fugla. Leyfður er innflutningur á gæludýrafóðri sem meðhöndlað hefur verið þannig að:
- nagbein úr skinnum eða leðri hafi verið hituð nægilega til að drepa smitandi lífverur (þ.m.t. salmonellu),
- niðursoðið fóður hafi verið hitað að lágmarki 3.0 í Fc gildi í loftþéttum umbúðum,
- annað gæludýrafóður en nefnt er hér að ofan hafi verið hitað upp í kjarnahita a.m.k. 90°C,
og að því tilskyldu að hráefnið innihaldi ekki eftirtalin dýr og dýraafurðir:
1. Sjálfdauð dýr, þ. á m. dauðfædd og ófædd dýr (dýrafóstur).
2. Dýr sem slátrað hefur verið vegna útrýmingar dýrasjúkdóma.
3. Dýraúrgang þ. á m. blóð úr dýrum sem við kjötskoðun eru dæmd óhæf vegna smitsjúkdóma.
4. Þá hluta dýra sem slátrað er með eðlilegum hætti, en koma ekki til kjötskoðunar. Þetta gildir þó ekki umhúðir, skinn,blóð og svipaðar afurðir.
5. Kjöt, alifuglakjöt, fisk, villibráð og matvæli gerð úr dýraafurðum sem hafa orðið fyrir skemmdum.
6. Dýr, ferskt kjöt og alifuglakjöt, fisk, villibráð, kjöt- og mjólkurafurðir sem almennt myndu ekki standast kröfur dýralæknayfirvalda til innflutnings.
7. Dýraafurðir og dýraúrgang sem inniheldur leifar af aðskotaefnum sem eru hættuleg mönnum og dýrum.
8. Fisk eða fiskúrgang sem dæmdur hefur verið óhæfur til manneldis vegna smitsjúkdóma.
9. Afurðir úr áhættusömum dýravefjum, svo sem mænum, heilum, hausum og milti úr nautgripum og sauðfé.
10. Afurðir sem mengast hafa eftir hitameðferð.
d. Ull, notaða poka eða aðrar umbúðir, fiður, fjaðrir, dún, stráteppi, strákörfur, og óunnið dýrahár. Undanþegin eru sótthreinsuð hrá skinn, húðir, veiðiminjar og dauð dýr/fuglar sem ætlunin er að stoppa upp enda fylgi vottorð um fullnægjandi sótthreinsun að mati yfirdýralæknis.
e. Ómeðhöndluð egg, eggjaskurn og eggjaafurðir.
f. Ógerilsneydda mjólk og mjólkurafurðir unnar úr ógerilsneyddri mjólk.
g. Hey, hálm, alidýraáburð, gróðurmold, mó og rotmassa, blandað alidýraáburði.
h. Blóð, sermi og aðrar lífrænar vörur úr dýraríkinu, þ.m.t. sýklar, veirur, blóð-, blóðvatns-, frumu-, vefja- og dýraeggjahvítusýni.
i. Notuð reiðtygi og ósótthreinsuð reiðföt, óhreinan fatnað og tuskur svo og búnað sem notaður hefur verið til geymslu og flutninga á dýrum og dýraafurðum.
j. Notaðar landbúnaðarvélar og áhöld, þar með taldar hestakerrur og önnur tæki sem notuð hafa verið í landbúnaði.
k. Notaðan veiðibúnað til stangveiði, nema að undangenginni sótthreinsun.

III. KAFLI Skilyrði innflutnings.

4. gr.

Innfluttum vörum sem flokkast í vöruliði 0210, 0401-0408, 1601 og 1602, og eftirfarandi tollaflokka sem innihalda kjöt 1901-2023, 1901-2043, 1902-2021, 1902-2022, 1902-2029, 1902-2041, 1902-2042, 1902-2049, 1902-3021, 1902-3029, 1902-3041, 1902-3049, 1902-4021, 1902-4029, 1904-3001, 1904-9001, 1905-9051, 2004-9006, 2005-9001, 2103-9051, 2103-9052, 2103-9059, 2106-9064, í tollskrá, sbr. viðauka I við tollalög nr. 55/1987, sem hlotið hafa fullnægjandi hitameðferð, skulu fylgja þau vottorð sem hér greinir eftir því sem við á:

a. Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð.
b. Soðnum sláturafurðum og matvælum, sem ekki eru niðursoðin, fylgi sérstakt opinbert vottorð, sem staðfestir að varan hafi hlotið hitameðferð, þannig að kjarnhiti hafi náð 72°C í 15 sekúndur, sé það ekki staðfest í uppruna- eða heilbrigðisvottorði, sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð að mati yfirdýralæknis.
c. Mjólk og mjólkurafurðum fylgi sérstakt opinbert vottorð sem staðfestir að varan sé gerilsneydd eða unnin úr gerilsneyddri mjólk, sé það ekki staðfest í uppruna- og heilbrigðisvottorði, sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð að mati yfirdýralæknis.
d. Eggjum og eggjaafurðum fylgi sérstakt opinbert vottorð sem staðfestir að varan hafi verið hituð í 65°C í fimm mínútur, sé það ekki staðfest í uppruna- og heilbrigðisvottorði, sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð að mati yfirdýralæknis.
e. Opinbert vottorð sem staðfestir að afurðir séu unnar í afurða-/vinnslustöðvum, viðurkenndum af Evrópusambandinu, aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða bandarískum yfirvöldum, til útflutnings og/eða sölu innan þessara ríkjasambanda.

5. gr.

Innfluttum vörum sem flokkast undir vöruliði 0202, 0203, 0204, 0207, 0208 og 0210, sbr. viðauka I við tollalög nr. 55/1987, og hafa ekki hlotið fullnægjandi hitameðferð, skulu fylgja þau vottorð sem hér greinir:

a. Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð.
b. Opinbert vottorð sem staðfestir að dýrum, sem afurðirnar eru af, hafi ekki verið gefin vaxtarhvetjandi efni á eldistímanum.
c. Vottorð sem staðfestir að vörurnar hafi verið geymdar við a.m.k. –18°C í einn mánuð fyrir tollafgreiðslu.
d. Opinbert vottorð sem staðfestir að dýrunum, sem afurðirnar eru af, hafi verið slátrað í sláturhúsum og afurðirnar unnar í vinnslustöðvum, viðurkenndum af Evrópusambandinu, aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða bandarískum stjórnvöldum, til útflutnings og/eða sölu innan þessara ríkjasambanda.
e. Opinbert vottorð sem staðfestir að afurðirnar séu lausar við salmonellusýkla.
f. Slátur- og mjólkurafurðir og egg skulu uppfylla ákvæði gildandi reglugerðar um aðskotaefni í matvælum.
g. Varan skal merkt í samræmi við gildandi reglur um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla.

IV. KAFLI Innflutningsleyfi.

6. gr.

Landbúnaðarráðherra er heimilt, að fenginni umsögn yfirdýralæknis, að leyfa innflutning á vörum, sem taldar eru upp í 3. gr. reglugerðarinnar, sbr. 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, enda þyki sannað að ekki berist smitefni með þeim er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum og þau skilyrði sem sett hafa verið fyrir innflutningnum séu uppfyllt.
Þegar sótt er um innflutning á hrárri eða ósótthreinsaðri vöru skv. 1. mgr. í fyrsta sinn skal innflytjandi láta landbúnaðarráðuneytinu í té nauðsynlegar upplýsingar um vöruna til athugunar og samþykkis áður en varan er send frá útflutningslandi.

Innflytjandi hrárrar vöru skal alltaf sækja um leyfi til landbúnaðarráðherra og leggja fram, til umsagnar embættis yfirdýralæknis, aðflutningsskýrslu, upplýsingar um uppruna- og framleiðsluland vörunnar, tegund vöru og framleiðanda auk tilskilinna vottorða skv. 5. gr.

Innflytjandi hitameðhöndlaðrar vöru skal alltaf leggja fram, til umsagnar embættis yfirdýralæknis, aðflutningskýrslu, uppruna- og heilbrigðisvottorð ásamt vottorði skv. e-lið 4. gr., auk annarra tilskilinna vottorða skv. b-, c-, og eða d-lið 4. gr.

7. gr.

Innflytjandi vöru skal sjá til þess að öll nauðsynleg vottorð fylgi vörunni við innflutning og ber hann allan kostnað sem kann að leiða af öflun vottorða og þeim sóttvarnarráðstöfunum sem uppfylla þarf vegna innflutningsins, þ.m.t. nauðsynlegri sýnatöku og rannsóknum sem yfirdýralæknir telur nauðsynlegar.

Ferðamenn sem koma með soðin matvæli, þar sem staðfest er á umbúðum, að varan hafi hlotið hitameðferð, eins og áskilið er í b- og c-lið 4. gr., þurfa ekki að framvísa sérstökum vottorðum.

8. gr.

Umsögn yfirdýralæknis varðandi ákvæði 3., 4., og 5. gr., sbr. 6. gr skal byggjast á áhættumati, sem m.a. tekur mið af listum OIE (Alþjóða heilbrigðismálastofnun dýra) varðandi A og B sjúkdóma og annarra alþjóðlegra staðla og leiðbeininga. Um framkvæmd þessarar greinar fer eftir ákvæðum samingsins um beitingu ráðstafana um hollustuhætti og heilbrigði dýra og plantna í 1. viðauka A við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

9. gr.

Stjórnendur skipa og flugvéla sem koma til landsins með matarleifar sem í eru sláturafurðir skulu sjá til þess að þær séu losaðar í sérstaka lekahelda sorpgáma og síðan eytt samkvæmt fyrirmælum yfirdýralæknis. Sláturafurðum sem fluttar eru inn án heimildar skal eytt á eldi eða á annan tryggilegan hátt.

Farmenn og ferðamenn sem koma til landsins skulu hlíta ákvæðum þessarar reglugerðar að því er varðar sláturafurðir sem eru í farangri þeirra og ætlaðar eru til eigin nota.

10. gr.

Landbúnaðarráðherra getur heimilað umflutning á vörum þeim sem taldar eru upp í 3. gr. þessarar reglugerðar enda sé varan flutt úr landi á ný. Skilyrði fyrir slíku leyfi er að varan sé flutt í vandlega lokuðum umbúðum, þar sem innihald er tilgreint og sendingunni fylgi uppruna- og heilbrigðisvottorð, sbr. a-liði 4. og 5. gr.

11. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

12. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993, með síðari breytingum, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr nr. 66/1998, með síðari breytingum, lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum nr. 99/1993, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Reglugerðin er tilkynnt í samræmi við tilskipun nr. 98/34/EBE um reglur um tilhögun upplýsingaskipta vegna tæknilegra staðla og reglugerða. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar berist til landsins og um takmörkun á innflutningi afurða dýra, sem fengið hafa vaxtaraukandi efni, nr. 479/1995 og breyting á henni með reglugerð nr. 784/2000. Einnig eru felldar úr gildi auglýsing um innflutning á blönduðu kjarnfóðri nr. 140/1982 og auglýsing um varúðarráðstafanir vegna innflutnings á rotmassa til svepparæktar nr. 117/1990, auglýsing um innflutning notaðra reiðtygja og reiðfatnaðar nr. 226/1990, auglýsing vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 483/1995 og breyting á henni nr. 262/1996 og auglýsing um innflutning á sláturafurðum sem ekki hafa fengið hitameðferð nr. 324/1999.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.