Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

723/2008

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1073/2005.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10b í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2005, frá 2. desember 2005, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1073/2005 frá 7. júlí 2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar IFRIC-túlkun 2.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1073/2005 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 38/2008, 26. júní 2008, bls. 411.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2005 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 10/2006, 23. febrúar 2006, bls. 32.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 7. júlí 2008.

F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.

Þórður Reynisson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.