Umhverfisráðuneyti

1131/2011

Reglugerð um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til flugrekenda. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi fjallar um endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda til flugrekenda sem heyra undir umsjón Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

2. gr.

Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi orða og orðasambanda sem hér segir:

Árangursviðmið: Viðmið sem skilgreint er sem losunarheimildir á tonnkílómetra. Árangursviðmið skal notað til ákvörðunar á endurgjaldslausri úthlutun losunarheimilda til flugrekenda skv. 1. mgr. 14. gr. c laga nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda, með síðari breytingum.

Flugrekandi: Aðili sem rekur loftfar og notar það til að stunda flugstarfsemi sem tilgreind er í III. viðauka laga nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda, með síðari breytingum, eða, ef aðilinn er óþekktur eða ekki tilgreindur af eiganda loftfars, eigandi loftfarsins.

Tonnkílómetrar: Flugvegalengd margfölduð með þyngd farms. Með flugvegalengd er átt við stórbaugslengd (e. great circle distance) milli brottfararflugvallar og komuflugvallar auk 95 km staðlaðrar viðbótar. Með þyngd farms er átt við samanlagða þyngd þess sem flutt er af farmi, pósti og farþegum.

3. gr.

Árangursviðmið.

Árangursviðmiðið sem nota skal til að úthluta losunarheimildum án endurgjalds til flugrekenda skv. 1. mgr. 14. gr. c laga nr. 65/2007, með síðari breytingum, fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. desember 2012, skal vera 0,000679695907431681 losunarheimild á tonnkílómetra.

Árangursviðmiðið sem nota skal til að úthluta losunarheimildum án endurgjalds til flugrekenda skv. 1. mgr. 14. gr. c laga nr. 65/2007, með síðari breytingum, fyrir tímabilið frá 1. janúar 2013 til 31. desember 2020, skal vera 0,000642186914222035 losunarheimildir á tonnkílómetra.

Við útreikning á fjölda losunarheimilda, sem skal úthluta í samræmi við árangursviðmið skv. 1. og 2. mgr., skal námunda niður að næstu losunarheimild.

4. gr.

Innleiðing gerða Evrópusambandsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2011/638/ESB frá 26. september 2011 um viðmiðanir vegna úthlutunar heimilda til losunar gróðurhúsalofttegunda án endurgjalds til umráðenda loftfara skv. 3. gr. e í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, sem vísað er til í tölulið 21apd, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2011, frá 21. október 2011.

Reglugerðin er einnig sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/101/EB frá 19. nóvember 2008 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB þannig að kerfið fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins taki til flugstarfsemi, sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2011, frá 1. apríl 2011.

5. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 14. gr. c laga nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 9. desember 2011.

Svandís Svavarsdóttir.

Magnús Jóhannesson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica