Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

322/2006

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga nr. 1040/2005,
með síðari breytingum.


1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr.:
a. Orðið „dreifiveitur“ í 1. málsl. 14. mgr. fellur brott.
b. Við bætist ný málsgrein, er verður 15. mgr., svohljóðandi:
Landsnet skal senda nýja gjaldskrá til dreifiveitna a.m.k. 2 vikum áður en hún öðlast gildi.


2. gr.
Töluliður 1.1. í 23. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Neysluveitur skulu uppfylla skilyrði tæknilegra tengiskilmála, sem samþykktir hafa verið af öllum dreifiveitum, staðfestir af ráðherra og birtir með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt 10. mgr. 12. gr. og 6. mgr. 16. gr. raforkulaga, tekur þegar gildi.


Iðnaðarráðuneytinu, 5. apríl 2006.


Valgerður Sverrisdóttir.

Kristján Skarphéðinsson.
B_nr_322_2006.doc

Stofnreglugerð:
1040/2005 - Reglugerð um framkvæmd raforkulaga.

 

Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dmr.stjr.is
Prentvænt